Ólafur vill að Andrés hækki í heyrnartækinu

Mik­il um­ræð­a hef­ur ver­ið und­an­far­ið um á­feng­is­söl­u og net­versl­an­ir með á­feng­i. Í Mark­aðn­um í Frétt­a­blað­in­u í dag er rætt við Arnar Sig­urðs­son, eig­and­a Sant­ew­in­es SAS sem rek­ur net­versl­un­in­a sant­e.is,sem sel­ur á­feng­i sem við­skipt­a­vin­ir geta sótt á lag­er fyr­ir­tæk­is­ins án mill­i­göng­u Á­feng­is- og tób­aks­versl­un­ar rík­is­ins. ÁTVR hef­ur lagt fram lög­banns­kröf­u á starf­sem­in­a.

Þar er einn­ig rætt við Andrés Magn­ús­son, fram­kvæmd­a­stjór­a Sam­tak­a versl­un­ar og þjón­ust­u. Seg­ir Andrés eft­ir­tekt­ar­vert hvern­ig hags­mun­a­haf­ar hafi brugð­ist við fram­tak­i Sant­e. „Fé­lag at­vinn­u­rek­end­a, sem eru hags­mun­a­sam­tök fyr­ir á­feng­is­inn­flytj­end­ur, þegj­a þunn­u hljóð­i um þess­i mál. En þeir hróp­a hins veg­ar á torg­um þeg­ar kem­ur að sam­keppn­is­hindr­un­um á öðr­um svið­um, eins og í land­bún­að­i og póst­þjón­ust­u. Þar fara hljóð og mynd ekki sam­an,“ seg­ir Andrés.

Ólaf­ur Steph­en­sen, fram­kvæmd­a­stjór­i Fé­lags at­vinn­u­rek­and­a, skýt­ur á Andrés í færsl­u á Fac­e­bo­ok vegn­a þeirr­a orða sem hann lét fall­a í við­tal­i við Mark­að­inn.

„Vin­ur minn og koll­eg­i Andrés Magn­ús­son seg­ir í Mark­aðn­um í dag að Fé­lag at­vinn­u­rek­end­a hafi þag­að þunn­u hljóð­i um breyt­ing­ar á á­feng­is­mark­aðn­um að und­an­förn­u, m.a. með til­kom­u Sant­e Win­es og fleir­i net­verzl­an­a með á­feng­i. Hér er ann­ars veg­ar 1.400 orða yf­ir­lit yfir þá þögn og hins veg­ar tíu mín­útn­a við­tal við ykk­ar ein­læg­an. Koll­eg­i minn þarf kannsk­i að skrúf­a upp í heyrn­ar­tækj­un­um.“

Skjáskot/Facebook