Ólafur: Verður Gunnar Smári næsti formaður Eflingar?

Ólafur Arnarson, hagfræðingur og pistlahöfundur, veltir því fyrir sér hvort Gunnar Smári Egilsson, stofnandi Sósíalistaflokksins, verði næsti formaður Eflingar.

Ólafur skrifaði pistil sem birtist í helgarblaði Fréttablaðsins um helgina vegna stöðunnar innan Eflingar, eins fjölmennasta stéttarfélagsins landsins.

„Sólveig Anna Jónsdóttir, sem hrökklaðist úr formennsku hjá Eflingu um síðustu helgi, hefur rekið róttækari verkalýðsbaráttu en sést hefur í áratugi. Rétt eins og flokksbróðir hennar, Gunnar Smári Egilsson, hafnar hún málamiðlunum og rekur í reynd ekki verkalýðs- eða réttindabaráttu heldur stéttastríð ættað frá næstliðinni öld,“ segir Ólafur í pistli sínum.

Hann segir að Sólveig Anna hafi unnið markvisst gegn atvinnulífinu og raunar stillt atvinnulífinu og launþegum upp sem fullkomnum andstæðum með andstæða hagsmuni á öllum sviðum. Það sé sannarlega breyting frá þeirri þróun sem hér hafði átt sér stað allt frá Þjóðarsáttinni 1990.

„Með tilkomu Sólveigar Önnu virtist sem átök á vinnumarkaði væru óumflýjanleg. Orðræðan var skýr: atvinnurekendur væru arðræningjar sem kúguðu starfsfólk og ekkert nema barátta og samstaða launþega gæti brotið kúgunina á bak aftur. Var þetta mjög í takt við málflutning Sósíalistaflokks Gunnars Smára fyrir þingkosningarnar í september. Á tímabili virtust bæði Gunnar Smári og Sólveig Anna hafa góðan byr í segl sín,“ segir Ólafur sem rifjar svo upp hvernig fór.

„Sósíalistaflokkurinn náði ekki á þing og ekki ríkir friður um Sólveigu Önnu. Hún virðist sek um sömu kúgun og ógnarstjórn og hún sakar atvinnurekendur um. Allt sprakk innan frá vegna þess að starfsfólki hennar ofbauð hroki og yfirgangur. Vonandi lærir verkalýðshreyfingin af óförum Sólveigar Önnu og fer með skynsamlegar kröfur inn í kjarasamninga á næsta ári. Ekki eru forsendur til annars eftir miklar launahækkanir á liðnum misserum.“

Ólafur endar pistilinn á þessum orðum:

„Ætli næsti kjörni formaður Eflingar verði svo Gunnar Smári Egilsson, sem var lykilmaður á bak við kjör Sólveigar Önnu 2018 og hefur stundum verið talinn skuggastjórnandi þar?“