Ólafur Þór Ævarsson, geðlæknir, skrifaði opið bréf til Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra á Facebook í gær sem hann biður vini sína um að tryggja að komist til hennar.
„Virðulegi forsætisráðherra. Ég vil þakka þér fyrir vel unnið hugsjónastarf fyrir íslensku þjóðina. Mér var einu sinni kennt að þegar mikið liggur við sé réttast að leita beint til þess sem hefur æðstu völdin. Einnig geri ég mér fulla grein fyrir því að ef bréf þetta færi til fjármálaráðherra þá myndi það því miður ekki breyta neinu. Ég starfa sem læknir í fjárveltu heilbrigðiskerfi þar sem þjónustan við sjúklingana er ekki lengur sú besta fáanlega eins og lög bjóða og fjársvelti með of lítilli mönnun veldur kulnun og veikindum starfsfólks,“ skrifar Ólafur.
„Ég hitti daglega barnafjölskyldur sem reyna að lifa af tekjum sem eru langt undir mörkum til þess að það geti gengið sómasamlega. Ég hef undanfarin ár aðstoðað fólk til að takast á við afleiðingar Hrunsins og hef séð með eigin augum þá ósanngirni sem það hefur mætt hjá fjármálastofnunum,“ bætir Ólafur við.
Hann segist því vera í fullum rétti til að rita Katrínu þetta bréf.
„Í raun ber mér skylda til þess að tjá þér beint að þessi atburðarás sem við erum nú áhorfendur að við sölu bankanna er fullkomlega óásættanleg. Þetta er ákvörðun sem er tekin af stjórnmálamönnum og við munum ekki láta blekkjast þegar reynt verður að kenna bankastarfsmönnum eða stofnunum um. Okkur er svo misboðið að það er illmögulegt að tjá það með orðum. Það mætti þó prófa að nota orð eins og spillingu eða ofbeldi. Við getum ekki sem þjóð með nokkru móti látið koma svona fram við okkur. Það fer gegn skynsemi og lýðræðis- og félagsvitund okkar flestra. Við getum ekki og megum ekki sætta okkur við framkomu stjórnvalda af þessu tagi. Við munum aldrei gera það,“ skrifar Ólafur að lokum.