Ólafur þakklátur að Guðni sé forseti en ekki Ólafur Ragnar

Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, ræddi við Egil Helgason um stríðið í Úkraínu og um málefni Rússlands í Silfrinu í gær. Sagði hann þar að innrás Rússa hefði á vissan hátt komið sér á óvart.

„Ég hitti Pútín fyrst fyrir tuttugu árum síðan í opinberri heimsókn,“ sagði Ólafur um kynni sín við forseta Rússlands. „Hann hefur á öllum þessum fundum verið tiltölulega hógvær og skynsamur, hlustað á öll rök, aldrei reynt að ýta mér eða Íslandi í neina óþægilega stöðu.“

„Meira að segja á fyrstu árunum fannst mér margt sem hann sagði merkilegt. Á þessum fyrstu fundum sagði hann mér að hann hefði varað Bandaríkin við íslamistum og að þeir myndu gera árás á Bandaríkin en að enginn hefði verið að hlusta á hann. Ég var líka með honum í opinberum samkvæmum. Hann kom mér ekki fyrir sjónir sem einhver kolruglaður fantur,“ sagði Ólafur.

Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, setti færslu um viðtalið á Facebook í morgun sem hefur vakið mikla athygli:

„Ég sé að vinir mínir hér á Facebook eru margir hverjir hneykslaðir og jafnvel reiðir yfir þessu viðtali við Ólaf Ragnar Grímsson í Silfrinu í gær. Ég get skilið það, þótt fátt hafi nú komið á óvart í þessu rausi,“ segir hann.

„Mér er hins vegar þakklæti efst í huga eftir að hafa horft á viðtalið. Þakklæti fyrir að þessi maður sé ekki forsetinn okkar á þessum umróts- og örlagatímum, sem við lifum.“

Ólafur segir að hann sé þakklátur fyrir að eiga forseta sem á ríka mannúð og samhygð og „finnur ekki hjá sér neina þörf til að hrútskýra fyrir okkur að stríðsglæpirnir í Úkraínu séu eiginlega óhjákvæmileg afleiðing þess að hinn „hógværi og skynsami“ leiðtogi í Kreml hafi ekki getað búið við það að ríkjum, sem höfðu lengi verið undir járnhæl Rússa, væri hleypt inn í varnarbandalag vestrænna lýðræðisríkja“:

„Ég er þakklátur fyrir að eiga forseta sem leggur áherzlu á samstöðu okkar með öðrum vestrænum ríkjum gegn árás Pútíns á frið, lýðræði og mannréttindi. Á meðan við höfum Guðna, má Ólafur Ragnar mín vegna leika sér með óligörkum og nudda sér utan í morðóða einræðisherra. Verði honum að góðu.“