Ólafur Stephen­sen: „Ég veit þá hvert ég er ekki að fara með fjöl­skylduna að fá mér að snæða“

„Hvað eiga veitinga­­staðirnir Metro, American Sty­le, Aktu Taktu, Ham­borgara­fabrikkan, Shake & Pizza og Black­box og af­­þreyingar­­staðirnir Keilu­höllin og trampólín­garðurinn Rush sam­eigin­­legt?“ spyr Ólafur Stephen­sen fram­kvæmda­stjóri Fé­lags at­vinnu­rek­enda á Face­book í dag.

„Jú, þeir eru nú allir í eigu Kaup­­fé­lags Skag­­firðinga, þar sem einn af æðstu stjórn­endum ber nafn­bótina heiðurs­­konsúll Rúss­lands á Ís­landi. Hann sagðist í við­­tölum síðast­liðið vor „ekki einu sinni [hafa] hug­­leitt það“ að segja af sér þessari heiðurs­­nafn­bót eftir að ríkið sem veitti honum hana hafði orðið upp­­víst að skelfi­­legum stríðs­­glæpum í Úkraínu,“ skrifar Ólafur.

Hann deilir með færslu sinni hlekk á frétt mbl.isen þar kemur fram að Lög­regl­an í Úkraínu hef­ur fundið lík 534 al­­mennra borg­ara á svæðinu sem úkraínski her­inn hef­ur náð úr hönd­um Rússa frá því í byrj­un sept­em­ber.

„Ég veit þá hvert ég er ekki að fara með fjöl­­skylduna að fá mér að snæða,“ skrifar Óli að lokum.