Ólafur sendir Guð­mundi Frank­lín væna pillu: „Ekkert bak­land og enn minna traust“

Ólafur F. Magnús­son, fyrr­verandi borgar­stjóri, hvetur Guð­mund Frank­lín Jóns­son, fyrr­verandi for­mann Hægri grænna, til að ráð­færa sig við vini og ættingja áður en hann „anar út í vit­leysuna.“

Guð­mundur Frank­lín hefur verið orðaður við fram­boð til for­seta Ís­lands og kveðst hann ætla að gera upp hug sinn á næstunni. Guð­mundur virðist alls ekki úti­loka fram­boð og gæti vel farið svo að nafn hans verði að finna á kjör­seðlinum í vor.

Ólafur F. Magnús­son, sem var borgar­stjóri árið 2008, vandar Guð­mundi ekki kveðjurnar á Face­book-síðu sinni og hvetur hann til að „virkja jarð­tengingu sína“ eins og hann orðar það.

„Það væri ó­á­bygt í meira lagi að stefna þjóðinni í for­seta­kosningar á þeim tímun sem nú eru uppi. Ég bið þig, Guð­mundur Frank­lín, þó ekki væri nema fyrir þig og vanda­menn þína, - að gera sig ekki að at­hlægi með fram­boði. Til þess hefur þú ekkert bak­land og enn minna traust.“

Guð­mundur hefur komið víða við á undan­förnum árum og meðal annars verið hótel­stjóri í Dan­mörku og Prag. Þá starfaði hann sem verð­bréfa­miðlari á Wall Street. Guð­mundur var for­maður Hægri grænna sem buðu fram í Al­þingis­kosningunum 2013. Flokkurinn fékk 1,7% at­kvæða og kom ekki manni á þing. Þá hugðist Guð­mundur bjóða sig fram til for­seta árið 2016 en dró fram­boð sitt til baka.