Ólafur sendir Bjarna og Svan­dísi harð­ort bréf: „Ekki rétt­lætan­legt að senda neyt­endum reikninginn“

Fé­lag at­vinnu­rek­enda hefur sent mat­væla­ráð­herra og fjár­mála­ráð­herra erindi og hvatt stjórn­völd til að beita sér fyrir af­námi 76% tolls á franskar kar­töflur, í fram­haldi af fréttum um að eini ís­lenski fram­leiðandinn sé hættur fram­leiðslu á vörunni. Hæsti verndar­tollurinn í ís­lensku toll­skránni verndar þá ná­kvæm­lega ekki neitt.

Greint var frá því í gær­morgun að Þykkvi­bær ehf. hefur hætt fram­leiðslu á frönskum kar­töflum.

Í bréfi sínu til Svan­dísar Svavars­dóttur og Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra rifjar fé­lagið upp fyrri til­lögur sínar um að tollurinn verði felldur niður, en hann hefur um ára­bil ein­göngu verndað fram­leiðslu þessa eina fyrir­tækis, sem þar að auki fram­leiddi franskar að hluta til úr inn­fluttu hrá­efni.

Í fréttatilkynningu FA segir að það sé „ekki rétt­lætan­legt að senda neyt­endum reikninginn.“

„Í ljósi þess að hæsti verndar­tollurinn í ís­lenzku toll­skránni verndar ekkert lengur, hvorki inn­lenda kar­töflu­fram­leiðslu né eina inn­lenda iðn­fyrir­tækið sem fram­leiddi franskar kar­töflur, hvetur FA mat­væla­ráð­herra og fjár­mála­ráð­herra ein­dregið til að beita sér fyrir því strax og Al­þingi kemur saman í haust að tollurinn verði felldur úr gildi. Hægt er að hafa ýmsar skoðanir á rétt­mæti þess að neyt­endum sé sendur reikningurinn fyrir vernd ís­lenzkrar land­búnaðar­fram­leiðslu, en það er með engu móti hægt að rétt­læta að þeim sé sendur himin­hár reikningur fyrir því sem ekkert er,“ segir í bréfi Ólafs Stephen­sen fram­kvæmda­stjóra til ráð­herranna.

„Stjórn­völd hljóta auk þess að telja það skyldu sína, á tímum er verð­bólga er í sögu­legum hæðum, að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að lækka verð á neyzlu­vörum. Af­nám tolls á franskar kar­töflur er aug­ljós leið til þess.“

Franskar fluttar inn á 46-76% tolli

Undan­farin ár hafa um 95% franskra kar­taflna, sem ís­lenskir neyt­endur leggja sér til munns, verið inn­flutt vara. Á franskar kar­töflur leggst 76% tollur sam­kvæmt toll­skrá og er það hæsti prósentu­tollur á mat­vöru sem hægt er að finna í toll­skránni. Sam­kvæmt frí­verslunar­samningum við Kanada og Evrópu­sam­bandið eru franskar kar­töflur fluttar inn á lægri tolli, sem er þó eftir sem áður gífur­lega hár, eða 46% og veldur því að neyt­endur greiða hærra verð fyrir vöruna sem því nemur.

Í bréfi sínu til ráð­herranna bendir FA á að tollurinn á franskar kar­töflur er að flestu leyti hlið­stæður 59% tolli á kar­töflu­snakk, sem var í gildi til ára­móta 2017. Hann verndaði aðal­lega eitt fyrir­tæki sem fram­leiddi snakk úr inn­fluttu hrá­efni, Stjörnusnakk. Al­þingi felldi hann engu að síður úr gildi haustið 2016. Af­leiðingin var sú að um ára­mótin 2017 lækkaði inn­flutt snakk í verði um 22-43%. Inn­lenda fram­leiðslan fékk vissu­lega harðari sam­keppni, en ekki verður annað séð en að Stjörnusnakk sé enn í blóm­legum rekstri. Eftir af­nám tollsins hafa frum­kvöðlar meira að segja sett á stofn nýtt snakk­fyrir­tæki, Ljótu kar­töflurnar, sem fram­leiðir flögur úr ís­lenzkum kar­töflum við góðan orð­stír.

Hægt er að lesa bréfið hér.