Í byrjun mánaðarins átti Félag atvinnurekenda og viðsemjendur félagsins innan Alþýðusambandsins fundi með matvæla- og fjármálaráðherra, þar sem lagðar voru fram tillögur samtakanna um lækkun og niðurfellingu tolla til að lækka matarverð og vinna gegn verðbólgunni.
Þetta kemur fram í færslu frá FA en mánuðurinn er liðinn síðan og engin viðbrögð hafa komið við tillögunum - en verðbólgan heldur hins vegar áfram að hækka. Lækkun tolla er ein skilvirkasta leiðin til að lækka matarverð.
„Nú væri gott að fara að sjá svör frá ríkisstjórninni við tillögum FA, VR, LÍV og Rafiðnaðarsambandsins um lækkun og niðurfellingu tolla til að lækka matarverð og vinna gegn verðbólgu. Eitthvað hljóta stjórnvöld að ætla að gera,“ skrifar Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA og deilir frétt a fundinum.