Ólafur Ragnar minnist góðs vinar: Stoð og stytta í veikindum Guðrúnar Katrínar

Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, fer hlýjum orðum um Kornelíus Jóhann Sigmundsson, sendiherra og fyrrverandi forsetaritara, í minningargrein sem birtist í Morgunblaðinu um helgina. Kornelíus lést á heimili sínu á Seltjarnarnesi þann 19. ágúst síðastliðinn, 74 ára að aldri.

Kornelíus starfaði lengi í íslensku utanríkisþjónustunni og var auk þess forsetaritari í tíð tveggja forseta, Vigdísar Finnbogadóttur og Ólafs Ragnars Grímssonar.

Hann varð forsetaritari hjá Vigdísi árið 1987 og starfaði þar til ársloka 1991 að hann tók við starfi varafastafulltrúa og alræðismanns Íslands við Sameinuðu þjóðirnar í New York. Hann var svo kipaður sendiherra árið 1996 og tók aftur við starfi forsetaritara hjá Vigdísi og starfaði áfram hjá Ólafi Ragnari. Árið 1999 varð hann sendiherra Íslands í Helsinki og gegndi því starfi til ársins 2003 þegar hann varð aðalræðismaður Íslands í Winnipeg. Árið 2004 flutti hann aftur heim og starfaði við ýmis störf í utanríkisráðuneytinu.

Í grein sinni í Morgunblaðinu segir Ólafur að á tímum breytinga og ögrandi verkefna hafi Kornelíus stýrt liði forseta Íslands.

„Þjónaði þjóðhöfðingjanum af öryggi, festu, hæfni, víðsýni og vilja til að takast á við nýjar áskoranir. Vigdís kallaði hann ungan til verka og aftur síðar vegna ánægju með fyrri störf. Í slíkri ákvörðun blasa meðmælin við. Kornelíus lenti þó í þeirri erfiðu stöðu að bera boðin milli forsetans og þáverandi utanríkisráðherra. Svo ískalt var andrúmsloftið milli þessara tveggja ráðamanna að þau töluðust varla við. Líkt og í fornsögum varð Kornelíus boðberi tíðindanna. Leysti þann vanda af fagmennsku. Eins og annað. Lét sig litlu skipta þótt ráðherrann hindraði starfsframa í hefndarskyni,“ segir Ólafur og rifjar svo upp þegar hann tók við embætti forseta.

„Þegar við Guðrún Katrín komum til Bessastaða tók hann okkur með einstakri ljúfmennsku. Undirbjó allar ferðir til þjóðhöfðingja Norðurlanda og víða um sýslur Íslands og héruð. Ætíð nákvæmur og úrræðagóður. Hvort sem kóngar, bændur eða sjómenn áttu í hlut. Farsæld hins nýja forseta var í góðum höndum. Við veikindi Guðrúnar Katrínar og andlát á sjúkrahúsinu í Seattle varð Kornelíus stoð fjölskyldunnar og stytta. Kom með vestur um haf og aftur þegar flytja þurfti kistuna heim. Fjölskyldan verður ávallt þakklát fyrir mennskuna og hlýhug sem þá einkenndu alla hans framkomu. Hinn reglufasti forsetaritari var umfram allt góður maður. Árin fyrstu í forsetatíð var samstarf okkar ærið náið. Daglegt samráð, fjöldi viðburða og víða farið. Undirbúningur og framkvæmd ávallt í öruggum höndum. Hafi tími tveggja forseta sem hann þjónaði reynst farsæll ber Kornelíusi Sigmundssyni verulegur heiður af þeirri vegferð. Forsetaembættið og þjóðin á honum mikið að þakka,“ segir hann meðal annars.