Ólafur ó­sáttur við ó­þrifnaðinn: „Ó­trú­legt hvað menn byrja seint að hreinsa götur“

Ólafur Kr. Guð­munds­son, vara­borgar­full­trúi Sjálf­stæðis­flokksins og íbúi í Grafar­vogi, er ó­hress með það hversu seint byrjað er að hreinsa götur í hverfinu. Í sam­tali við Morgun­blaðið í dag bendir hann á að ekki standi til að byrja að hreinsa síðustu hverfin í Grafar­vogi fyrr en 11. júní.

„Það er í raun ó­trú­legt hvað menn byrja seint að hreinsa götur hérna,“ segir hann og bætir við að þann 11. júní verði nánast byrjað að hausta aftur.

Í frétt Morgun­blaðsins er bent á að tals­verð um­ræða hafi verið um þetta á Face­book-síðu Reykja­víkur­borgar þar sem í­búar Grafar­vogs – og annarra hverfa – hafa lýst von­brigðum sínum. Byrjað var að hreinsa götur 30. apríl og er farið skipu­lega yfir hvert og eitt hverfi borgarinnar. Það vill svo til að Grafar­vogur er síðasta hverfið til að verða hreinsað.

Ólafur bendir á að er­lendis séu götur hreinsaðar mánaðar­lega. Hér á landi séu þær að­eins hreinsaðar á vorin og sumrin. „Ef þú myndir keyra Strand­veg núna fyrir framan Gylfa­flöt þá er ekkert nema drullutaumurinn með fram öllu þar og ef þú ferð í hann þá þyrlast upp ryk í allar áttir,“ segir Ólafur við Morgun­blaðið og bætir við að ó­þolandi sé að búa við svona ó­þrifnað.

Á heima­síðu Reykja­víkur­borgar má sjá hve­nær götur í hverfum borgarinnar verða hreinsaðar.