Ólafur Örn Ólafsson veitingamaður og umsjónarmaður sjónvarpsþáttanna Kokkaflakk, varpar fram athyglisverðri hugmynd á Twitter.
Þúsundir manna hafa streymt að Geldingadölum undanfarna daga til að sjá eldgosið sem nú geysar á Reykjanesi. Þetta hefur haft mikil áhrif, bæði á björgunarsveitir og lögreglu, sem hafa vart undan. Hefur verið gripið til þess ráðs að loka svæðinu á kvöldin og rýma það fyrir miðnætti svo viðbragðsaðilar geti hreinlega hvílt sig.
Ólafur Örn varpar fram athyglisverðri hugmynd á Twitter-síðu sinni.
„Vantar ekki fólk til að hjálpa fólki í kringum gosið á Reykjanesi? Er ekki mikið atvinnuleysi á svæðinu? Er mögulega hægt að láta þetta einhvern veginn passa saman? Gæti ríkið kannski ráðið fólk af Suðurnesjum í þetta? Veit svosem ekki um útfærslu, en kannski þess virði að skoða?“