Ólafur Örn Ólafsson, veitingamaður og umsjónarmaður sjónvarpsþáttanna Kokkaflakk, er með þeim skemmtilegri á Twitter.
Hann birti nokkuð athyglisverða færslu á Twitter-síðu sinni í gær, en eins og kunnugt er lést Filippus prins, eiginmaður Elísabetar Bretlandsdrottningar, í gærmorgun, 99 ára að aldri.
Í færslu sinni segir Ólafur:
„Á þessum degi er rétt að rifja upp að ég sá typpið á Filipusi prins þegar hann var hér og fór í sund í Vesturbæjarlaugina árið 1990.“
Eins og gefur að skilja býður færslan upp á skondnar athugasemdir. Magnús Guðmundsson, eða Maggi Peran, spyr hvort þarna hafi verið „alvöru krúnudjásn“ á ferðinni.
Margir hafa vottað bresku konungsfjölskyldunni samúðarkveðjur, þar á meðal íslensk yfirvöld. Filippus og Elísabet voru gift í 73 ár en nú stendur yfir formlegt átta daga sorgartímabil hjá drottningunni.
Eins og Hringbraut greindi frá í gær kom Filippus margoft til íslands og hafði hann sérstakt dálæti á íslenskum pönnukökum.
Á þessum degi er rétt að rifja upp að ég sá typpið á Filipusi prins þegar hann var hér og fór í sund í Vesturbæjarlaugina árið 1990
— Ólafur Örn Ólafsson (@olafurorn) April 9, 2021