Ólafur minnist Sigurðar vinar síns sem lést í Banda­ríkjunum

Ólafur F. Magnús­son, læknir og fyrr­verandi borgar­stjóri, minnist kollega síns, Sigurðar Samúels Sigurðs­sonar, sem lést á heimili sínu í Far­mers Branch í Texas í Banda­ríkjunum þann 9. októ­ber síðast­liðinn. Sigurðar var minnst í Morgun­blaðinu í gær.

Sigurður var læknir að mennt en hann lauk prófi frá Há­skóla Ís­lands árið 1977. Árið 1979 fór hann að landa­mærum Taí­lands og Kambódíu í flótta­manna­búðir á vegum Rauða kross Ís­lands og International Commi­ttee of the Red Cross, en þar var hann yfir­maður ís­lenska lækna­t­eymisins og sá um að veita flótta­fólki og fórnar­lömbum stríðs læknis­að­stoð fram á vor 1980.

Sigurður starfaði á Land­spítalanum til 1983 þegar hann flutti til New York og hóf sér­fræði­nám í svæfinga­lækningum. Sam­hliða lækna­störfum var hann að­stoðar­prófessor við Uni­versity of Iowa þar sem hann var kosinn kennari ársins skóla­árið 1989 til 1990. Árið 1994 flutti hann með fjöl­skyldu sinni til Texas þar sem Sigurður hóf einka­rekstur. Var hann meðal annars með­eig­andi í lækna­t­eymi sem sér­hæfði sig í hjarta­skurð­lækningum og starfaði sem svæfinga­læknir sleitu­laust fram í ágúst­mánuð síðast­liðinn.

Leiðir þeirra Ólafs F. Magnús­sonar og Sigurðar lágu fyrst saman árið 1956 þegar Sigurður og for­eldrar hans dvöldu hjá fjöl­skyldu Ólafs í Arlington á jólum 1956. „Ég þekkti eðli málsins sam­kvæmt vel til Sigurðar og vorum við skóla­bræður í MH á árunum 1968-1971, þegar hann varð stúdent,“ segir Ólafur sem minntist Sigurðar á Face­book-síðu sinni í gær.

„Guð blessi minningu góðs drengs og kærs kollega. Ég minnist hans með hlýju og þakka sí­fellt fyrir sam­eigin­legt jóla­hald okkar í Banda­ríkjunum fyrir 64 árum.“

Sigurður var jarð­sunginn frá Foss­vogs­kirkju í gær.