Ólafur lætur óbólusetta heyra það: „Áhrifaríkara að biðja fisk um að drekkja sér“

Ólafur Hauksson almannatengill segir að undarleg undanlátssemi ríki í þjóðfélaginu gagnvart því ábyrgðarlausa fólki sem hafnar bólusetningu.

Ólafur viðrar þessa skoðun sína á vef Vísis og bendir á það að óbólusett fólk sé aðalástæðan fyrir núverandi álagi á heilbrigðiskerfið. Það leiði síðan leiðir til harkalegra smitvarna og tilheyrandi tekjutaps í mörgum atvinnugreinum. Að ekki sé talað um stórfellt rask í lífi tugþúsunda einstaklinga.

Hann segir að þessi undanlátssemi birtist meðal annars í því að biðlað sé til fólks um að láta bólusetja sig en lítið meira en það.

„Hinir andsetnu andstæðingar bólusetninga eru hins vegar svo forhertir af hjarðheimskunni að þeir spyrna fótum bara fastar niður og kveikja í kyndlunum. Áhrifaríkara virðist að biðja fisk um að drekkja sér. Áhrifafólk telur ekki rétt að þvinga fólk til að láta bólusetja sig eða setja því skorður fyrir þátttöku í daglegu lífi. Í kurteisisskyni er óbólusettum því leyft að setja þjóðfélagið á hliðina.“

Ólafur bendir á að víða annars staðar en á Íslandi sé þolinmæðin þrotin gagnvart skemmdarverkum óbólusettra og kyndilbera þeirra.

„Búið er að taka af þeim réttinn til að sliga heilbrigðiskerfið. Í Austurríki hefur verið ákveðið að setja á bólusetningarskyldu. Mjög víða þarf fólk að sýna vottorð um bólusetningu til að fá flestalla þjónustu, ferðast eða halda vinnunni. Slíkar aðgerðir eru hins vegar þunglamalegar og seinlegar. Hér á landi eru engar kvaðir um bólusetningu við Covid-19.“

Ólafur segir að fortölur og vísindalegar staðreyndir virðist engin áhrif hafa á þá sem eru alvarlega smitaðir af mótþróaþrjóskuröskun gagnvart bólusetningu.

„Ábyrgðarleysið gagnvart öðrum þjóðfélagsþegnum er algjört. Þetta fólk mun halda áfram að valda tjóni þangað til bólusetningarskylda verður ákveðin og henni fylgt eftir af ekki minni festu en þegar ríkið innheimtir hjá okkur skattana í hverjum einasta mánuði.“

Pistill Ólafs hefur vakið nokkra athygli og virðast margir vera sammála honum. Illugi Jökulsson, rithöfundur og fjölmiðlamaður, gerir pistilinn að umtalsefni á Facebook-síðu sinni og tekur undir efni hans.

„Ég held að Ólafur Hauksson hafi alveg rétt fyrir sér hér. Ég skil til dæmis ekki tregðuna við að leyfa veitingamönnum og verslunareigendum að krefjast bólusetningarvottorðs. Ég var í Kaupmannahöfn fyrir nokkrum vikum þar sem þau tíðkuðust og það var bara nákvæmlega ekkert vandamál.“