„Ég myndi alveg gera það hér heima, yrði ég beðinn um það og ég gæti komið að gagni,“ segir Ólafur Jóhann Ólafsson rithöfundur í ítarlegu viðtali í nýjasta tölublaði Stundarinnar.
Í viðtalinu fer Ólafur um víðan völl, uppvaxtarár sín, árin í viðskiptum og framtíðaráform sín svo fátt eitt sé nefnt. Segir Ólafur að hann sé að líkindum hættur í viðskiptum og nú sé kominn tími til að einbeita sér eingöngu að ritstörfunum.
Í viðtalinu segist Ólafur ekki vera flokkspólitískur en þó pólitískur þegar kemur að mönnum og málefnum. Þegar hann er spurður hvort hann gæti hugsað sér að taka þátt í pólitík hér heima útilokar hann það ekki.
„Maður vill ekki sjá hlutina eins og í stjórnartíð Trumps og maður vill því leggja hönd á plóginn,“ segir hann og bætir við að hann myndi gera það hér heima ef hann yrði beðinn um það. Hann sé þó ekki viss um hvort það yrði í einhverju opinberu valdi.
Ólafur Jóhann var meðal annars orðaður við framboð til embættis forseta Íslands árið 2016 en hann segist ekki hafa verið nálægt því að fara í framboð.
„Ég hef ekki í alvörunni leitt hugann að því, nei. Það hefur verið rætt við mig, fólk komið að máli við mig en bara svona eins og gengur með marga aðra gegnum tíðina. Ég hef aldrei velt því mikið fyrir mér. Ég er ekkert viss um að ég yrði mjög góður í því að vera forseti.“