Ólaf­ur Ís­leifs: Borg­ar­lín­an á á­byrgð Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Fram­kvæmd­ir við Borg­ar­lín­un­a eru um­deild­ar og Ólaf­ur Ís­leifs­son, þing­mað­ur Mið­flokks­ins, ger­ir hana að um­tals­efn­i í skoð­an­a­grein sem birt­ist á Vísi í dag. Þar gagn­rýn­i Ólaf­ur fram­kvæmd­in­a hark­a­leg­a og grein­ir frá til­lög­um á­hug­a­hóps­ins Á­hug­a­fólk um sam­göng­ur fyr­ir alla (ÁS) sem hann tel­ur mun væn­legr­i til ár­ang­urs en það sem til stand­i að gera varð­and­i Borg­ar­lín­un­a.

„ÁS legg­ur til að sér­ak­rein­ar verð­i hægr­a meg­in við ak­braut­ir á þeim köfl­um þar sem eru lang­ar bið­rað­ir bíla á á­lags­tím­um. Sér­ak­rein­ar fyr­ir al­menn­ings­vagn­a verð­i ekki tekn­ar frá al­mennr­i um­ferð held­ur gerð­ar nýj­ar ak­rein­ar. Þess­i létt­a út­gáf­a mynd­i því ekki auka um­ferð­ar­taf­ir. Þór­ar­inn Hjalt­a­son sam­göng­u­verk­fræð­ing­ur og tals­mað­ur á­hug­a­hóps­ins tel­ur að laus­leg­a á­ætl­að­ur kostn­að­ur við slík­a létt­a út­gáf­u yrði um 20 millj­arð­ar kr. Þess­i fjár­hæð er um 80 millj­örð­um krón­a lægr­i en 100 millj­arð­a á­ætl­un um stofn­kostn­að borg­ar­lín­u en ger­ir nán­ast sama gagn að dómi Þór­ar­ins,“ skrif­ar Ólaf­ur.

Hann seg­ir að nota megi það fjár­magn sem spar­ist til að ráð­ast í fram­kvæmd­ir á borð við Sund­a­braut sem brýn þörf sé á að hans mati. „Henn­i fylgj­a mikl­ir hags­mun­ir, ekki síst fyr­ir íbúa í Graf­ar­vog­i, Graf­ar­holt­i og á Kjal­ar­nes­i sem sam­þykkt­u sam­ein­ing­u við Reykj­a­vík með á­skiln­að­i um að braut­in yrði lögð,“ skrif­ar hann.

Kosn­ing­a­mál Sam­fylk­ing­ar­inn­ar

Ólaf­ur seg­ir það skyld­u stjórn­vald­a að end­ur­skoð­a á­form um að verj­a 50 millj­örð­um krón­a „í kosn­ing­a­mál Sam­fylk­ing­ar­inn­ar“ eins og hann orð­ar það. „Annað væri ó­á­byrg með­ferð á op­in­ber­u fé og vít­a­verð van­ræksl­a á að gæta hags­mun­a skatt­greið­end­a.“

Að hans mati er á­byrgð­in á þess­u fram­lag­i úr rík­is­sjóð­i á end­an­um Bjarn­a Ben­e­dikts­son­ar, fjár­mál­a­ráð­herr­a og formanns Sjálf­stæð­is­flokks­ins. „Á veg­um ráð­herr­a starfar op­in­ber­a hlut­a­fé­lag­ið Betr­i sam­göng­ur ohf. sem hafa á um­sjón með fram­kvæmd­um. Þess­u fé­lag­i stýr­a flokks­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins, fram­kvæmd­a­stjór­i, sem kunn­ur er af starf­i á vett­vang­i Heim­dall­ar, og stjórn­ar­for­mað­ur fé­lags­ins, Árni M. Math­i­es­en, fjár­mál­a­ráð­herr­a í hrun­stjórn­inn­i. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn stendur þann­ig á­byrg­ur fyr­ir borg­ar­lín­unn­i, fram­kvæmd henn­ar og fjár­mögn­un. Fjár­mögn­un­in kem­ur úr rík­is­sjóð­i, svo all­ir hafi það á hrein­u.“

Í lok grein­ar­inn­ar spyr Ólaf­ur svo hvern­ig á því stand­i að brýnn­a sé fyr­ir Sjálf­stæð­is­flokk­inn að „fjár­magn­a fok­dýr­ar trú­ar­setn­ing­ar Sam­fylk­ing­ar en efna fyr­ir­heit um Sund­a­braut.“

Árni Math­i­es­en fyrr­ver­and­i fjár­mál­a­ráð­herr­a er stjórn­ar­for­mað­ur Betr­i sam­gangn­a ehf.