Ólafur hittir 2-3 lækna á viku sem eru orðnir óvinnufærir vegna sjúklegrar streitu

Ólafur Þór Ævarsson, geðlæknir og sérfræðingur í streitu og kulnun, segist hitta tvo til þrjá lækna hér á landi í hverri viku sem eru orðnir óvinnufærir vegna álags.

„Þeir eru komnir með meira en kulnun, komnir í ástand sjúklegrar streitu,“ segir Ólafur í viðtali við Stundina. Hann gerði fyrir skemmstu rannsókn á álagi á lækna hér á landi. Til að gera langa sögu stutta var niðurstaðan sú að mun fleiri læknar upplifa sjúklega streitu en hann hafði gert sér í hugarlund.

„Meginniðurstöðurnar voru mikið áhyggjuefni. Allt að tveir þriðju hlutum lækna eru undir ofurálagi og lítið má út af bregða til þess að þeir finni fyrir skerðingu á starfsgetu,“ segir hann meðal annars í viðtalinu. Þá kemur fram að um helmingur af þeim læknum sem tóku þátt í rannsókninni hafa hugleitt að hætta í starfi sem læknir.

Ólafur segir að afleiðingar sjúklegrar streitu séu alvarlegar. Til að byrja með finni fólk fyrir kvíða, depurð, vanmætti og þreytu. Næsta stig á eftir er kulnun þar sem svefninn truflast, úthaldið minnkar og áhuginn á starfinu hverfur. Ef svefn- og hvíldarleysið nær tökum sé hætta á að enda í því sem kallast sjúkleg streita sem einkennist af gríðarlegri andlegri og líkamlegri þreytu, enn verri kvíða og depurð og vaxandi vitrænum einkennum með einbeitingartruflun og minnisleysi.

„Sumir upplifa jafnvel að þeir séu komnir með Alzheimer vegna þess hve einkennin geta orðið sterk. Þetta eru mjög alvarleg einkenni og það mætti segja að þeir sem fara hvað hvað lengst inn í þetta ástand, þeir fá tímabundin heilabilunareinkenni. Heilinn er ekki starfhæfur lengur og vanlíðanin er mikil.“