Rithöfundurinn Ólafur Haukur Símonarson virðist yfir sig hrifinn af að minnsta kosti einni tiltekinni bók í jólabókaflóðinu þetta árið. Ólafur skrifaði skemmtilega færslu á Facebook-síðu sína í gær þar sem hann sagðist hafa vakið konuna sína um miðja nótt í hláturskasti.
„Ég hef af stakri samviskusemi lesið nýútkomnar „jólabækur“. Gulla hefur að venju áhyggjur af meðferð minn á bókunum sem ég les: „Óli, þú mátt ekki grýta hálflesnum bókum út í horn, það er móðgun við fólk sem er búið að slíta þremur buxnarössum við að koma þeim saman. Þér leyfist ekki að gera þá kröfu til rithöfunda að þeir hafi bæði almenna skynsemi og kímnigáfu.“
Ólafur Haukur segir svo að í fyrrinótt hafi konan hans vaknað af fasta svefni við það að hann skellihló.
„Hvað er nú“, spurði hún, „af hverju hlærð þú eins hýena um miðja nótt?“ „Þetta er svo djöfull fyndin bók!“ æpti ég. „Þetta er bókin sem ég hefði skrifað væri ég þrítugur!
„Hvaða bók er það?“ spurði Gulla. „Þetta er blóðsplatter-, rugludalla- og skítahúmors- þjóðfélagskrufning af geggjuðustu gerð fyrir fólk eins og mig sem er orðið hundleitt á öllu þessu smekklega, velskrifaða, húmorlausa fimm stjörnur leiðindastöffi.“
„Hvað heitir bókin“? spurði Gulla og var risin upp í rúminu orðin hrikalega spennt.
„ARNALDUR INDRIÐASON DEYR!“ æpti ég. „Nýr snillingur er fæddur á Íslandi!“
Bókin sem um ræðir er eftir Braga Pál Sigurðarson og hefur hún vakið talsverða athygli undanfarnar vikur. Segir bókin frá því þegar ástsælasti rithöfundur þjóðarinnar, Arnaldur Indriðason, finnst myrtur í kjallaraíbúð í Norðurmýrinni.