Ólafur Haukur segir hugmynd Svandísar út í hött: „Hvaða hreðjatak hefur Kristján Loftsson á Alþingi?“

Rithöfundurinn ástsæli Ólafur Haukur Símonarson lætur Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra heyra það í færslu sem hann birti á Facebook-síðu sinni í gær.

Í gær var greint frá því að hún hefði lagt til að skipstjórar hval­veiðiskipa skuli til­nefna dýra­vel­ferðarfull­trúa úr áhöfn fyr­ir hvert skip sem eigi að bera ábyrgð að allt sé með felldu á meðan hvalveiðar eru stundaðar.

Honum finnst ákvörðun hennar út í hött og spyr hvort að réttara væri að að hlæja eða gráta.

„Nú er erfitt að gera upp við sig hvort heldur er við hæfi að hlæja eða gráta. Matvælaráðherra landsins, Svandís Svavarsdóttir, hefur komist að niðurstöðu aldarinnar. Hún hyggst smala dýralæknum um borð í ryðkláfa Kristjáns Loftssonar til þess að fylgjast með og mynda ferlegt dauðastríð stórhvela sem prýða höfin blá.“

Ólafur Haukur segir kaldhæðnislega að eflaust muni dýralæknar keppast um þessi störf.

„Það hlýtur að verða grimm eftirspurn meðal dýralækna eftir því að fá að æla af viðbjóði þegar sprengiskutlarnir tæta í sundur innyfli þessara greindu og glæstu risa hafsins.“

Að lokum spyr Ólafur hvaða „hreðjatak“ Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf, hafi á Alþingi. Og þá hvetur hann til þess að hvalveiðar verði stöðvaðar strax.

„Má ég spyrja: hvaða hreðjatak hefur Kristján Loftsson á Alþingi Íslendinga? Það hlýtur að vera fast og sársaukafullt tak fyrst friðarsinninn, umhverfisvinurinn og mannvinurinn Svandís Svavarsdóttir lætur sé detta í hug aðra eins steypu. Stöðvið þessa ferlegu dellu undireins!“