Ólafur Hand sýknaður í Lands­rétti

Ólafur Hand, fyrr­verandi upp­lýsinga­full­trúi Eim­skips, hefur verið sýknaður í Lands­rétti af á­kæru um of­beldi gegn barns­móður sinni. DV greinir frá sýknu­dómnum sem féll í dag.

Greint var frá því í janúar 2019 að Ólafur hefði verið sak­felldur í héraðs­dómi í desember 2018. Um­rætt at­vik sem á­kært var fyrir átti sér stað sumarið 2016 þegar barns­móðir Ólafs kom á heimili hans og eigin­konu hans til að sækja barn þeirra.

Í frétt DV í janúar 2019 var hún sögð hafa komið fyrr en á­ætlað var og í kjöl­farið hafi komið til á­taka. Í héraðs­dómi var Ólafur sak­felldur fyrir að taka barns­móður sína háls­taki og þrengja að hálsi hennar.

Ólafur neitaði sök stað­fast­lega og sögðu bæði hann og eigin­kona hans að barns­móðirin hefði ruðst inn í húsið og látið öllum illum látum. Þau kærðu at­vikið og eftir að barns­móðurinni barst kæran kærði hún Ólaf og eigin­konu hans fyrir líkams­á­rás.

Dómur Lands­réttar hefur ekki verið birtur á vefnum. Eftir að fjallað var um dóminn árið 2019 missti Ólafur starf sitt sem upplýsingafulltrúi og markaðsstjóri Eimskipa.