Ólafur: Grindavíkurbær mögulega í hættu – „Raunverulega ógnin er eldgosið“

Ólafur G. Flóvens, jarðeðlisfræðingur og fyrrverandi forstjóri Íslenskra orkurannsókna, segir að ef hraun kemur upp á óheppilegum stað sé Grindavíkurbær í verulegri hættu. Þetta er meðal þess sem kemur fram í viðtali við Ólaf í Morgunblaðinu í dag.

Jarðskjálftahrina hefur staðið yfir undanfarnar vikur á Reykjanesskaga og orsakast þeir af landrisi undir Svartsengi. Í frétt Morgunblaðsins kemur fram að ótvírætt sé að kvikusöfnun sé að eiga sér stað einhvers staðar undir Reykjanesinu.

„Þess­ir skjálft­ar eru bara pirr­andi fyr­ir íbúa en ekki skaðleg­ir. Raun­veru­lega ógn­in er fyrst og fremst eld­gosið, þá er spurn­ing hvar það kem­ur upp og svo hvert hraunið gæti runnið,“ segir Ólafur við Morgunblaðið.

Einn möguleikinn er sá að á 15 til 20 kílómetra dýpi undir Fagradalsfjalli sé að eiga sér stað kvikusöfnun og gæti gas frá henni verið að leita upp í áttina að Svartsengi. Þá sé einnig möguleiki á því að hluti kvikunnar sé að leita upp undir Svartsengi.

„Við vit­um að þarna er leið, að minnsta kosti fyr­ir gas, und­ir jarðhita­kerf­inu, svo það er vissu­lega hætta á eld­gosi þarna og sú hætta er ef­laust veru­leg því eitt­hvað er þessi kvika að leita,“ segir Ólafur og bendir á að ef hraun kemur upp á óheppilegum stað sé Grindavíkurbær í verulegri hættu. Bendir hann á að Grindavík sé reist á ungu hrauni.