Ólafur G. Einarsson er látinn

Ólaf­ur G. Ein­ars­son, fyrr­ver­andi alþing­ismaður og ráðherra, er látinn níræður að aldri. Greint er frá andláti hans í Morgunblaðinu í dag. Ólafur lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni í gær.

Ólafur fæddist á Sigluf­irði 7. júlí 1932 og ólst þar upp. Hann lauk stúd­ents­prófi frá MA 1953 og stundaði meðal annars nám í lækn­is­fræði árin 1953–1955 áður en hann lauk lög­fræðiprófi frá HÍ árið 1960.

Ólafur kom víða við á ferli sínum í atvinnulífinu og var meðal annars sveitarstjóri í Garðahreppi á árunum 1960-1972. Hann var kjörinn á þing fyrir Sjálfstæðisflokkinn árið 1971 og sat á þingi til ársins 1999.

Í mörg ár, eða frá 1979 til 1991, var hann þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, menntamálaráðherra á árunum 1991 til 1995 og forseti Alþingis frá 1995 til 1999. Þá sat hann í bankaráði Seðlabankans á árunum 1998 til 2007 og var formaður þess frá 2001 til 2006.

Í andlátstilkynningu Morgunblaðsins í dag er rifjað upp viðtal í tilefni af 85 ára afmæli hans árið 2017.

Þar sagði hann meðal annars:

„Árin eru orðin mörg, en ég get varla kvartað, heils­an al­veg sæmi­leg og geðið gott. Ég hef verið bókamaður, og alltaf haft gam­an af kveðskap og vís­um, stjórnaði m.a. hagyrðinga­mót­um. En mesta ánægj­an var að veiða. Það hef ég gert lengst í Sandá í Þistil­f­irði. En nú er því lokið þó að minn­ing­ar um sporðaköst­in lifi.“