Ólafur Arnarson, hagfræðingur og fyrrverandi formaður Neytendasamtakanna, er nú að útskrifast af Landspítalanum eftir fimm daga legu. Ólafur kom fárveikur á Landspítalann síðasta vetrardag með tilvísun frá lækni Heilsugæslunnar með það sem kallað er heimakoma.
Um er að ræða tegund húðsýkingar sem getur verið býsna óþægileg og fylgir henni oft hiti, skjálfti og almenn vanlíðan. Ólafur segist ekki mæla með henni fyrir nokkurn mann.
„Ég get hins vegar ekki orða bundist yfir því frábæra fólki sem hefur annast mig hér bæði á bráðamóttökunni og á A-2 bráðalyflækningadeildinni. Við eigum frábært heilbrigðisstarfsfólk og frábært heilbrigðiskerfi. Án þess að ég væri gjörgæslutækur þurfti að fylgjast grannt með mér á nóttu sem degi fyrstu 2-3 sólarhringana og ég á ekkert nema hrós til handa öllum sem önnuðust mig, sjúkraliðum, ófaglærðu fólki, nemum, hjúkrunarfræðingum og læknum. Þvílík fagmennska og hlýtt viðmót sem maður mætir hjá öllu þessu fólki.
Ólafur segist á Facebook-síðu sinni ekki heldur vilja láta hjá líða að þakka fyrir frábæra þjónustu Heilsugæslu miðbæjar og læknisins þar sem lét gera viðbótarblóðrannsókn áður en hann var sendur heim með lyfseðil upp á sýklalyf.
„Þegar viðbótarniðurstöðurnar lágu fyrir sendi hún mig beint upp á bráðadeild. Íslenska heilbrigðiskerfið má að sjálfsögðu bæta eins og öll mannanna verk, en það breytir ekki því að við Íslendingar erum forréttindaþjóð að búa við svona frábært heilbrigðiskerfi. Auðmjúkur segi ég: Takk fyrir mig!“
Jæja, þá er verið að útskrifa mig af Landspítalanum í Fossvogi eftir fimm daga legu. Hingað kom ég fárveikur síðasta...
Posted by Ólafur Arnarson on Mánudagur, 26. apríl 2021