Ólafur F. hraunar yfir Dag eftir Silfrið á sunnudag: Hvetur kjósendur til að gefa honum reisupassann

Ólafur F. Magnússon læknir og fyrrverandi borgarstjóri Reykjavíkur vandar Degi B. Eggertssyni borgarstjóra ekki kveðjurnar í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag. Hann segir bráðnauðsynlegt að kjósendur í Reykjavík steypi Degi af stóli í sveitarstjórnarkosningunum í vor.

Tilefni greinarinnar er síðasti þáttur af Silfrinu á RÚV þar sem Dagur var gestur. Þar hraunaði Dagur yfir Ólaf, sem þykir það heldur ómaklegt. Skýrir hann grein sína fyrir vikið Borgarstjóri kastar steinum úr glerhúsi í „Silfrinu.“

Grein Ólafs hefst svona: „Borgarstjóri, Dagur B. Eggertsson, var gestur Egils Helgasonar í „Silfrinu“ á Rúv, sunnudaginn 21. nóvember sl. og fór þar mikinn. Hann hrósaði sjálfum sér mjög í viðtalinu og samherjum sínum í flugvallarmálinu úr Sjálfstæðisflokki, þeim Hönnu Birnu Kristjánsdóttur og Gísla Marteini Baldurssyni. Það voru einkum þrír einstaklingar sem borgarstjóri „vandaði ekki kveðjurnar“ svo notað þé orðalag spyrilsins, Egils Helgasonar,“ segir Ólafur.

Hann heldur áfram: „Ekki kom á óvart að ég væri einn þessara einstaklinga, enda var ég sá borgarstjóri á þessari öld sem barðist einarðlegast fyrir áframhaldi Reykjavíkurflugvallar í Vatnsmýri. Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni kenndi hann um skammlíft meirihlutasamstarf mitt við Sjálfstæðisflokkinn, þó að nær væri að benda þar á Hönnu Birnu Kristjánsdóttur og félaga hennar úr hópi flugvallarandstæðinga í Sjálfstæðisflokknum,“ segir Ólafur.

Hann á margt upp gert við Hönnu Birnu: „Hanna Birna og félagar komu Vilhjálmi Þ. frá sem oddvita borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins í júní 2008 og mér frá sem borgarstjóra tveim mánuðum síðar.“

Því næst tekur Ólafur upp hanskann fyrir Sigmundi Davíð, en Dagur talaði illa um formann Miðflokksins í Silfur-þætti sunnudagsins. Ólafur segir aðför Dags að Sigmundi einstaklega rætna: „Athyglisvert er hve illa borgarstjórinn núverandi talaði um Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Miðflokksins og fv. forsætisráðherra. Dagur sakaði hann um stefnuleysi og tækifærismennsku og að hann hefði á sínum tíma verið meiri andstæðingur flugvallarins en Gísli Marteinn, að sögn Gísla Marteins, þegar þeir unnu saman í Kastljósinu,“ segir Ólafur.

Því næst ber hann saman fjármálastjórn Sigmundar og Dags, sem hann segir að sé tvennt gjörólíkt: „Athyglisvert er að bera saman frábæra fjármálastjórn Sigmundar Davíðs sem forsætisráðherra og hvernig hann hjálpaði heimilinum í landinu í sinni forsætisráðherratíð við fjármálaóstjórnina hjá núverandi borgarstjóra.“

Hann segir spillingu ríkja í borginni: „Mikil óráðsía og spilling ríkir nú í stjórn borgarinnar. Það er líka þörf á því, að bera fjármálastjórn okkar Vilhjálms í borgarstjóratíð okkar saman við fjármálaóstjórn Dags Eggerts sonar. Dagur hefur margfaldað kostnað við rekstur borgarstjóraskrifstofunnar frá tíð okkar Vilhjálms og stundað hreina óráðsíu í fjármálum borgarinnar með útþenslu á borgarbákninu á flestum sviðum,“ segir Ólafur.

Til viðbótar leggist gríðarleg lántaka og skuldaaukning ofan á það: „Miklir fjármunir fara í að hindra umferðarflæði um götur borgarinnar og í gæluverkefni á borð við braggann fræga.“

Ólafur vill helst að höfðað sé mál gegn Degi: „Mér finnst það sérkennilegt að ekki hafi verið höfðað mál gegn Degi fyrir margar sakir, en hann höfðaði sem formaður borgarráðs mál gegn mér fyrir engar sakir fjórum árum eftir að ég var borgarstjóri, þar sem ég var sakaður um fjárdrátt.“

Málið er afar einfalt í huga Ólafs, hann vill losna við Dag úr starfi borgarstjóra: „Núverandi borgarstjóri finnur hins vegar ekkert að hjá sjálfum sér en talar í sífellu um borgarlínu, þéttingu byggðar og flugvöllinn í Vatnsmýri, sem hann hefur tekið ástríðufullu hatri við. Milljarðasóun, spilling og skemmdarverk Dags í borgarstjóraembættinu gera það bráðnauðsynlegt að kjósendur gefi honum reisupassann í næstu borgarstjórnarkosningum,“ segir Ólafur undir lok pistils síns.