Ólafur ekki sáttur við Rás 2: Segir úrval íslenskrar tónlistar lítið – Spila lög starfsmanna

„Það er mikil vanvirðing við tónlistarfólk almennt að örfáir starfsmenn RÚV, sem hvergi þurfa að sýna fram á faglega hæfni eða kunnáttu, stjórni framrás íslenskrar tónlistar,“ segir tónlistarmaðurinn Ólafur Þórarinsson, oft kallaður Labbi í Mánum, í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag.

Í grein sinni gagnrýnir hann Rás 2 nokkuð harðlega vegna úrvals íslenskrar tónlistar í safni stöðvarinnar. Segir hann að halda mætti að á íslandi finnist aðeins nokkrir tugir tónlistarfólks og stór hluti þess starfi þar að auki hjá stofnuninni.

„Allt mitt líf hef ég verið dyggur stuðningsmaður Ríkisútvarpsins og litið á það sem þjóðarstolt sem varðveitir sögu okkar og menningu. Þegar Rás 2 var sett á laggirnar var það tónlistarfólki mikið fagnaðarefni því hún átti að styrkja og efla íslenska dægurtónlist,“ segir Ólafur.

Hann segir að til að byrja með hafi verið þar mikið fjör og gróska en þegar tímar liðu hafi verið eins og tröll hefðu hlammað sér í farveginn.

„Tröll eru ekki þekkt fyrir nærgætni og aðhyllast aðeins hluta mannfólks og setja það þá gjarnan í guðatölu en koma hinum fyrir kattarnef. Þeir sem náð höfðu vinsældum í mannheimum komust reyndar á öldur ljósvakans í gegnum óskalagaþætti og vinsældalista því þar voru það landsmenn sem völdu tónlistina. Þegar svo þessir þættir lögðust af ásamt öðrum tengslum við þjóðina höfðu tröllin því töglin og hagldirnar og gátu nú skartað sínu sérvali í öllum bestu útsendingartímunum.“

Hann segir að RÚV hreyki sér af því að 50% tónlistarinnar sé ekki íslensk. „Þeir nefna hins vegar ekki að hún er nánast eingöngu úr þeirra einkasafni þar sem sömu lögin frá sama fólkinu eru síendurtekin bæði í útvarpi og sjónvarpi daginn út og daginn inn. Ef horft er á tónlistarflóru RÚV mætti ætla að á Íslandi finnist aðeins nokkrir tugir tónlistarfólks og stór hluti þess starfaði hjá stofnuninni.“

Að mati Ólafs er það mikil vanvirðing við tónlistarfólk almennt að örfáir starfsmenn RÚV, sem hvergi þurfa að sýna fram á faglega hæfni eða kunnáttu, stjórni framrás íslenskrar tónlistar.

„Þarna ætti að vera vel ígrundað vald með víðtæk tengsl inn í tónlistarheiminn landið um kring. Nú þegar útvarpsspilun og kynningar hafa aldrei gegnt veigameira hlutverki fyrir tónlistarútgáfu hefur þessi geðþóttaflokkun kippt fótunum undan mörgu vel metnu tónlistarfólki auk fjölmargra annarra starfa sem plötuútgáfu fylgir. Ekki alveg það sem lagt var upp með við stofnun Rásar 2!“

Hann heldur áfram:

„Ekki stendur RÚV betur að arfleifð tónlistarinnar þar sem handahófskenndar heimildir bera glögg merki einkasmekks og fáfræði höfunda og engin heildarsýn svo það sem til er er því lítið annað en sögufalsanir. Í ofanálag eru virtir fræðimenn farnir að skrifa harðorða gagnrýni um ört hnignandi málfar og menningu á RÚV og því augljóst að meinsemdin er útbreidd og þá ekki síst hjá stjórn stofnunarinnar.“

Hann segir það grátlegt að það sem vel hefur verið gert hjá RÚV falli gjörsamlega í skuggann af „klúðrinu“. „Ég hef verið talsmaður vel rekinna ríkisfyrirtækja með skýrt regluverk og gagnsæi en í ljósi alls þessa hef ég nú hallast að skoðunum margra um að hætta fjáraustri í þessa stjórnlausu hít og leggja RÚV niður. Heppilegast væri svo að fela ópólitískum menningarstofnunum þau gögn sem nothæf eru til varðveislu.“