„Þessi skattlagning er löngu komin út fyrir öll skynsemismörk og full ástæða til að vekja athygli á þessum ótrúlegu tölum,“ segir Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda.
Eins og greint var frá í gær stendur til að hækka áfengisgjaldið um áramótin um 2,5%. Þetta þýðir að hlutdeild ríkisins í útsöluverði þriggja lítra léttvínskassa í Vínbúðinni hækkar úr 81,6% í 83,1% miðað við meðalverð á léttvínskössum.
„Áfengisgjaldið bitnar harðast á þeim sem minnst hafa á milli handanna þar sem það leggst af meiri þunga á ódýrari áfenga drykki en þá dýrari. Það er löngu orðið tímabært að endurskoða þetta kerfi,“ segir Ólafur sem er ekki sáttur við þessa hækkun. Bent er á að áfengisgjald miðast við áfengisinnihald en ekki innkaupsverð og leggst því þyngra á ódýrari drykki.
Á vef Félags atvinnurekenda er búið að taka saman nýjar tölur um hlutdeild ríkisins í útsöluverði áfengis í Vínbúðum
„Farin var sú leið að þessu sinni að taka ekki stikkprufur af einstökum vörum, heldur reikna út meðalverð á öllum eftirfarandi vörum í Vínbúðinni: Þriggja lítra kassa af léttvíni, 750 ml léttvínsflösku, eins lítra vodkaflösku og 500 ml bjórdós. Áfengisprósentur í samanburðinum eru sömuleiðis meðaltöl,“ segir á vef Félags atvinnurekenda.
Eins og sést hér að neðan hækkar hlutdeild ríkisins í verði léttvínskassa úr 81,6% í ár upp í 83,1% á næsta ári ef hækkun áfengisgjaldsins, upp á rúmlega 92 krónur, gengur eftir.
Af verði meðal-léttvínsflöskunnar renna 65,1% til ríkisins á næsta ári í stað 64,1% á þessu ári. Skýringin á því að áfengisgjald er mun hærri hluti útsöluverðs léttvínskassa en léttvínsflösku er að hér er um meðaltöl að ræða og kassavínin eru að jafnaði ódýrari vín en þau sem sett eru á flöskur.
Þegar horft er á vodkaflöskuna hækkar hlutdeild ríkisins í útsöluverðinu úr 92,3% í ár í 94,1% á næsta ári. Af verði bjórdósarinnar tekur ríkið í dag 76,6% en á næsta ári 77,8% ef hækkun áfengisgjaldsins nær fram að ganga. Í öllum tilvikum tekur íslenska ríkið til sín drjúgan meirihluta af verði vörunnar.