Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi Forseti Íslands, deildi í kvöld myndbandi á Twitter þar sem rússneskir borgarar tjá sig um stríðið í Úkraínu. Það gerði hann undir yfirskriftinni „Raddir frá hinni hliðinni.“
Blaðamaður The Wall Street Journal deildi myndbandinu, og Ólafur áframdeildi því. Í því er haft eftir rússneskum borgurum ummæli sem mörgum gæti þótt öfgafull og óviðeigandi. Einn viðmælandinn segir að „þurrka eigi Úkraínu af kortinu“ og að stríðið snúist um að losa sig við „nasistarusl“ frá Úrkaínu.
Það að Ólafur deili myndbandinu hefur vakið upp reiði á samfélagsmiðlum.
„Þessar skoðanir hjá þessum rússa eiga ekki að sjást neinsstaðar og Óli dreifir þessu bara“ segir til að mynda einn netverji. Og annar segir: „Sá sem dreifir þessum áróðri er á 80% forsetalaunum til æviloka frá íslensku þjóðinni. Vel lasinn.“
Fleiri gagnrýna Ólaf. Nokkrir segja að fyrrverandi forsetinn deili með þessu „skammarlegu viðhorfi“.
Þegar stríðið í Úkraínu var nýhafið var Ólafur Ragnar gestur í Silfrinu. Ummæli hans um stríðið í þættinum fóru fyrir brjóstið á mörgum, en sumum þótti hann afsaka gjörðir Vladímírs Pútíns Rússlandsforseta.