Ólafur búinn að velja sér borgarstjóra og sendir Degi ískaldar kveðjur

Ólafur F. Magnússon, fyrrverandi borgarstjóri Reykjavíkur, segir að Reykvíkingar hafi ekki ráð á Degi B. deginum lengur. Það styttist óðfluga í sveitastjórnarkosningar og verður spennandi að sjá hvaða meirihluti verður myndaður í borginni eftir kosningar.

Ólafur skrifar um málið í aðsendri grein í Morgunblaðinu um helgina þar sem hann lýsir yfir eindregnum stuðningi við þær Hildi Björnsdóttur og Ragnhildi Öldu Vilhjálmsdóttur sem leiða lista Sjálfstæðisflokksins.

„Spilling, eyðilegging samgangna, þjarmað að Reykjavíkurflugvelli og sveltistefna í húsnæðismálum. Borgarstjórinn er á kafi í gæluverkefnum, sem eru mörg miklu dýrari fyrir borgarbúa en bragginn hans í Nauthólsvík og Óðinstorgið fyrir framan heimili hans. Hann svarar aldrei fyrir gagnrýni eins og kjörnum fulltrúa ber, en sýnir af sér dramb og stærilæti og talar niður til borgarbúa. Auk þess virðist hann uppteknari af að koma sjálfum sér á framfæri en að sinna vinnu sinni sem framkvæmdastjóri Reykjavíkurborgar. Andstæðinga sína leggur hann miskunnarlaust í einelti eins og ég þekki manna best,“ segir Ólafur um borgarstjórann, Dag B. Eggertsson.

Hann segir það brýna nauðsyn að efla Sjálfstæðisflokkinn í borgarstjórn í kosningunum í vor undir forystu Hildar og Ragnhildar.

„Þær eru glæsilegar og gáfaðar konur sem hlusta á fólk og eru líklegar til góðra verka. Ný forysta þeirra væri frelsun fyrir borgina og gæti snúið við óráðsíu- og ógæfuhjóli Dags B. í Reykjavík. Í 3., 4. og 5. sæti á borgarstjórnarlista Sjálfstæðisflokksins eru þau Kjartan Magnússon, Marta Guðjónsdóttir og Björn Gíslason, allt reynslumikið fólk, sem vann með mér af heilindum í borgarstjóratíð minni, árið 2008.“

Ólafur bendir á að sex konur séu á meðal tíu efstu frambjóðendanna á lista flokksins og í þann hóp komi sterkar inn þær Sandra Ocares og Birna Hafstein.

„Ég hef kynnst frambjóðendum að undanförnu. Þeir spanna sviðið frá miðju til hægri, styðja athafnafrelsi og minni skattheimtu og hafna þvingunargjöldum vegna gæluverka núverandi borgarstjóra. Megi Hildur Björnsdóttir verða næsti borgarstjóri í Reykjavík.“