Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda og stjórnarmaður í Landsnefnd UN Women á Íslandi, hvetur alla þá sem vettlingi geta valdið að leggja stofnuninni lið vegna ástandsins í Úkraínu.
Ólafur birtir í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag miður geðsleg skilaboð sem aðgerðarstjóri teymisins, sem skipuleggur móttöku flóttamanna frá Úkraínu, fékk frá íslenskum karlmanni. Skilaboðin voru svona:
„Get tekið að mér yngri en 35 ára einhleypa konu, væri gott ef hún kynni að dansa salsa.“
Ólafur segir í grein sinni að þetta sé klárlega ekki aðstoðin sem flóttamenn frá Úkraínu þurfa á að halda – og vonandi ekki einkennandi fyrir viðbrögð íslenskra karlmanna. „Sýnir okkur samt inn í veruleika, sem er miður geðslegur,“ segir hann.
Ólafur bendir svo á að talið sé að um átta milljónir Úkraínumanna séu nú á flótta, þar af um 90% þeirra konur og börn.
„Vitað er að konur á flótta eru í margfaldri hættu á að verða fyrir kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi, að vera seldar mansali eða þvingaðar í vændi til að endurgjalda aðstoð og nauðsynjar. UN Women, stofnun Sameinuðu þjóðanna um jafnrétti og valdeflingu kvenna, starfar á átakasvæðum víða um heim og rekur margvíslega starfsemi til að aðstoða þær milljónir kvenna, sem eru á flótta í Evrópu vegna stríðsins í Úkraínu,“ segir Ólafur.
Hann segir að hver sá sem á móður, systur, kærustu, eiginkonu eða dóttur geti reynt að gera sér í hugarlund hvað hann vildi að stæði henni til boða ef stríð eða hamfarir yrðu þess valdandi að hún yrði að flýja heimili sitt.
„Vildi hann að það væru glæpasamtök eða einstaklingar sem reyndu að nýta sér neyð hennar eða að það væru alþjóðlegar mannúðarstofnanir og –samtök sem hefðu fagþekkingu og bolmagn til að aðstoða hana við að halda sæmd sinni og lifa mannsæmandi lífi á nýjum stað?,“ spyr Ólafur og bendir fólki á hvernig það geti hjálpað:
„Þú getur hjálpað – með því að senda SMS-ið KONUR í 1900 (1.900 kr.) leggur þú þitt af mörkum til starfs UN Women. Þú getur líka gerzt ljósberi, mánaðarlegur stuðningsmaður UN Women, á unwomen.is. Vertu maður – leggðu þitt af mörkum til að hjálpa flóttakonum að halda mennsku sinni og reisn.“