Ólafur reiður Bjarna: „Með þessu á­fram­haldi getur fjár­mála­ráð­herran farið að til­einka sér ein­kunnar­orð Bósa ljós­árs“

Ólafur Stephen­sen, fram­kvæmda­stjóri Fé­lags at­vinnu­rek­enda, er allt annað en sáttur með Bjarna Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra.

„Það er mín skoðun að við séum komin al­gjör­lega út í ystu mörk á skatt­lagningu [á­fengis]. Þá er ég ein­fald­lega að vísa til þess að við erum lík­lega með eina dýrustu bjór­krús í Evrópu,“ sagði Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæðis­flokksins, á net­fundi með flokks­mönnum sínum í júní 2021. Rétt hjá honum. Á­fengis­skattar á Ís­landi eru þeir lang­hæstu í Evrópu og á­fengis­verðið eftir því,“ skrifar Ólafur í Frétta­blaðið í dag.

„Þetta er sami Bjarni og lagði til sem fjár­mála­ráð­herra í síðasta fjár­laga­frum­varpi að hækka al­menna á­fengis­skatta um 7,7% – og í frí­hafnar­verzlunum voru þeir hækkaðir um 169%. Þetta var rétt­lætt í greinar­gerð fjár­laga­frum­varpsins með því að það væri að­eins verið að láta krónu­tölu­skatta fylgja verð­bólgunni – og svo fylgdi kol­röng stað­hæfing um að þessi gjöld hefðu verið „ó­breytt frá árinu 2019“. Á­fengis­gjald hefur verið hækkað ár­lega og nemur upp­söfnuð hækkun þess 16% frá 2019 til 2023.“

Fé­lag at­vinnu­rek­enda tók sér fyrir hendur, í sam­starfi við Spi­rits Europe, Evrópu­sam­tök á­fengis­fram­leið­enda, að skoða hvernig á­fengis­skattar hefðu breytzt í Evrópu­ríkjum um ára­mótin.

„Rétt eins og á Ís­landi var met­verð­bólga í flestum ríkjum álfunnar á síðasta ári og erfitt á­stand í ríkis­fjár­málum. Engu að síður breyttu 26 ríki af 36 á­fengis­sköttum ekki neitt.“

Af þeim tíu Evrópu­ríkjum sem breyttu sköttum lækkaði eitt á­fengis­skattinn, það var Króatía.

„Af hinum níu var Ís­land það eina sem hækkaði á­fengis­skatta um­fram verð­bólguna, eins og hún er mæld með sam­ræmdri vísi­tölu neyzlu­verðs (sem er notuð til að bera saman verð milli Evrópu­ríkja). Hér á landi hækkaði skatturinn um 7,7% í 7,2% verð­bólgu. Það Evrópu­ríki sem hækkaði næst mest miðað við verð­bólgu, Rúmenía, hækkaði um 43% af verð­bólgunni á sama tíma og Ís­land hækkaði um 107%. Stjórn­völd í öðrum ríkjum reyndu með öðrum orðum að halda aftur af hækkunum, í þágu neyt­enda.

Með þessu á­fram­haldi getur fjár­mála­ráð­herrann okkar hins vegar farið að til­einka sér ein­kunnar­orð Bósa ljós­árs þegar kemur að á­fengis­sköttum: Út fyrir endi­mörk al­heimsins!“ skrifar Ólafur að lokum.