Ólafur á von titring í stjórnar­sam­starfinu um miðjan mánuð: „Ó­þægi­legt mál fyrir ríkis­stjórnina“

Þing kemur saman að nýju 13. septem­ber og enn hefur skýrsla Ríkis­endur­skoðunar um sölu ríkisins á hluta sínum ekki borist og er ekki víst hvort hún skili sér fyrir þing­setningu.

Ólafur Þ. Harðar­son, prófessor í stjórn­mála­fræði, var gestur Morgunút­varpsins á Rás 2 og fór yfir stöðuna. Hann segir Ís­lands­banka málið ó­þægi­legt fyrir ríkis­stjórnina.

„Það hefur verið aug­ljóst á þessu kjör­tíma­bili að það hefur verið meiri pirringur á milli stjórnar­flokkanna heldur en var á síðasta kjör­tíma­bili.“ Ríkis­stjórnin hafi unnið ó­venju­legan sigur í síðustu kosningum. „Það hafði ekki gerst í langan tíma og gerist mjög sjaldan að stjórnar­flokkar bæti við sig, en það gerði stjórnin 2020 og 2021,“ segir Ólafur á Rúv.

Hann segir að ,ál­efna­á­greiningur milli Sjálf­stæðis­flokks og Vinstri grænna hafi dofnað á síðasta kjör­tíma­bili þegar far­aldurinn tók yfir dag­skrá stjórn­málanna. Nú sé fylgi við ríkis­stjórnina komið undir 50 prósent og stjórnar­flokkarnir hafi saman­lagt hátt í 10 prósent um minna fylgi en í kosningunum. Staðan sé því orðin brot­hættari.

„Límið sem co­vid var við að halda saman mjög ó­líkum flokkum er ekki lengur fyrir hendi. Nú erum við komin í stjórn­mál eins og þau eru venju­lega, og í stjórn­málum eins og þau eru venju­lega skiptir hægri og vinstri mjög miklu máli,“ segir Ólafur.

Hægt er að lesa við­talið í held hér.