„Ég er búinn að ganga með þann draum í maganum síðan 1978,“ sagði Tómas A. Tómasson, betur þekktur sem Tommi á Búllunni, í viðtali við Bítið á Bylgjunni í morgun.
Eins og greint var frá um helgina er Tommi á leið í framboð fyrir Flokk fólksins. Tomma þarf vart að kynna enda afar reyndur veitingamaður sem komið hefur víða við. Í viðtalinu í morgun rifjaði hann upp skemmtilega sögu af því hvernig það kom til að hann ákvað að hella sér út í pólitík.
Árið 1978 var Tommi að vinna sem þjónn á huggulegum golfklúbbi samhliða háskólanámi sínu í Flórída.
„Það kemur þarna fjölskylda sem var frá Noregi, maðurinn var þarna með móður sinni í heimsókn sem var þarna kannski rúmlega sjötug. Ég sá um borðið þeirra og svo þegar hún komst að því að ég væri frá íslandi vildi hún alltaf vera að tala við mig af því að ég var frá Íslandi. Svo þegar kvöldið var búið og hún var að fara standa upp þá tók hún í höndina á mér og horfði djúpt í augun á mér og sagði: „Þú átt eftir að ná langt í íslenskum stjórnmálum þegar þú verður eldri.“
Tommi segist hafa trúað konunni en ekki verið tilbúinn til þess fyrr en núna, þegar hann er kominn á áttræðisaldur. Þegar Tommi var spurður í morgun hvort ekki væri einmitt eftirspurn eftir eldra fólki, fólki með reynslu svaraði Tommi játandi. „Ég hef reynslu af miklu brölti og baráttu.“
Aðspurður hvers vegna Flokkur fólksins varð fyrir valinu sagði hann að flokkurinn léti sig kjör og aðbúnað eldri borgara varða. Þá voru málefni einstæðra foreldra flokknum hugleikin.
„Ég er búinn að vera einstæður faðir og líf móður minnar var martröð sem einstætt foreldri þannig að ég læt mig þetta varða. Þegar ég opnaði Tomma hamborgara 1981 þá hét ég því að gefa hálft prósent af veltunni í Félag einstæðra foreldra og þetta er búið að vera mitt hjartans mál. Ég fíla líka Ingu Sæland, hún er skemmtilega áræðin.“
Tommi vildi ekki fara með mjög nákvæmum hætti í stefnumál sín, fari svo að hann nái kjöri á þing. Hann nefndi þó eitt sem hann væri til í að breyta.
„Ég hef orðið var við það að fólk sem vinnur með háskóla er miklu betri starfskraftur þegar það útskrifast heldur en fólk sem situr bara og les alla daga og hefur enga reynslu.“
Sagði Tommi að ein af ástæðunum fyrir því að fólk vinnur ekki með háskóla er að námslán eru aðgengileg. „En ef þú færð námslán þá máttu ekki vinna því ef þú vinnur þá er skorið af námsláninu. Þetta gerir það að verkum að annað hvort vinnur fólki ekki eða vinnur svart. Og hvorugt er gott. Þess vegna vil ég koma því áleiðis að námslán verði ekki skert þó að fólk vinni með.“