Öku­menn lenda í hættu­legri holu í Reykjavík: „Ég taldi þrjá bíla á svæðinu með sprungin dekk“

Jóhannes Tryggva­son vekur at­hygli á hættu­legri holu í Reykja­vík sem sprengt dekk hjá að minnsta kosti fjórum bílum.

„Áðan fór ég að hjálpa við að skutla bíl á dekkja­verk­stæði sem hafði sprengt dekk á ó­nýta mal­bikinu við hring­torgið hjá Granda og Ána­naustum og ég taldi þrjá bíla á svæðinu með sprungin dekk. Eru fleiri sem hafa lent í þessu?“ skrifar Jóhannes inn í í­búa­hóp Vestur­bæinga og birti fjórar myndir af bílum með sprungin dekk.