Óhugnanleg skilaboð ganga nú á milli fólks á samfélagsmiðlum þar sem varað er við yfirvofandi árás í miðborginni um helgina. Margeir Sveinsson yfirlögregluþjónn segir að lögregla kannist við þessi skilaboð.
Nokkrar útgáfur af skilaboðum eru í umferð þar sem fram kemur að einhvers konar hefndarárás sé í undirbúningi vegna árásarinnar á Bankastræti Club síðastliðið fimmtudagskvöld. Hátt í 30 einstaklingar réðust þá inn á staðinn og veittu þremur einstaklingum áverka með hníf.
Í skilaboðunum sem ganga á milli fólks eru fórnarlömb þeirrar árásar sögð vera með árásina í undirbúningi þar sem ráðist verður á dyraverði á nánar tilgreindum skemmtistöðum í miðborginni. Þá kemur fram að óbreyttir borgarar gætu einnig orðið fyrir barðinu á hópnum
„Mælt er með að fólk haldi sig frá bænum og í raun bara að staðirnir opni ekki um helgina,“ segir meðal annars í einum skilaboðum.
Margeir Sveinsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir í samtali við Fréttablaðið að lögregla kannist við að þessi skilaboð séu í umferð.
„Við erum bara að meta þetta og skoða og teljum okkur vita svona nokkuð hvaðan þetta kemur. Þannig að við ætlum að reyna að stoppa þetta í fæðingu,“ segir Margeir við Fréttablaðið.