Ófögur sjón blasti við hjónunum Agnesi Klöru Jónsdóttur og Björgólfi Jónssyni í gærmorgun, en fyrir framan bæ þeirra fundu þau fláð lambskinn af um tveggja vikna lambi.
Fréttablaðið greinir frá þessu, en í umfjöllun blaðsins um málið er haft eftir Agnesi: „Við ætluðum ekki að trúa þessu,“. Þá segir hún einnig frá því hvað hún telji líklegast að hafi gerst, en hún telur að maður frekar en dýr að verki, þó hafi verið farið heldur grimmilega að.
„Það hefur líklega ekki verið skorið á háls, bara rotað,“ segir hún og telur að dýrið hafi verið lifandi þegar það var fláð.
Björgólfur á síðan fund hjá lögreglunni í dag til að tilkynna málið og gerir Agnes ráð fyrir að í kjölfarið verði málið tilkynnt til Matvælastofnunar.
Agnes bendir á að bær þeirra sé alls ekki í alfaraleið, en hann er staðsettur í um 12 kílómetra akstursfjarlægð frá Fellabæ við Egilsstaði, og þá er hann ekki við þjóðveg heldur þarf að gera sér sérstaka leið til þeirra.
Þá var hún spurð hvort henni þætti þetta ekki óhugnanlegt, og svaraði játandi: „Jú, virkilega og maður fer núna að hugsa hvort við þurfum að fara að læsa. Maður er ekkert vanur því. Við búum úti í sveit og þau sem koma eru að koma til okkar. Það er enginn að taka sunnudagsrúnt þarna upp eftir,“
Hægt er að lesa nánar um málið á vef Fréttablaðsins.