Yfirmaður á Bankastræti og hjúkrunarfræðinemi reyndu að stöðva blæðinguna: „Einn stunginn tólf sinnum“

Að sögn sjónarvotta voru mennirnir þrír á Bankastræti Club stungnir margsinnis og illa í gærkvöldi. Þetta kemur fram í frétt Fréttablaðsins. Einn mannanna var stunginn að minnsta kosti tólf sinnum. Á­rásin í heild sinni tók þrjár mínútur og tóku um 27 einstaklingar þátt í henni.
Mennirnir þrír eru allir í kringum tví­tugt og særðust al­var­lega en eru ekki sagðir vera í lífs­hættu. Skjöt viðbrögð viðstaddra hafa líklegast skipt þar sköpum en samkvæmt starfsmanninum hljóp yfirmaður á Bankastræti til ásamt hjúkrunarfræðinema.

Mennirnir ruddist inn og ruku strax að staðsetningu mannanna þriggja og varð starfsmönnum strax ljóst að ekki væri allt með felldu enda mennirnir með skíðagrímur, lambhúshettur og co­vid­grímur.

Starfs­maðurinn lýsir því hvernig yfirmaður á staðnum og hjúkrunar­fræði­nem börðust við að stöðva blæðingu mannanna á meðan beðið var eftir lög­reglu og sjúkra­bíl.

„Einn þeirra var stungin oft og fór verst úr þessu,“ segir starfs­maðurinn sem vill ekki láta nafn síns getið. Miðað við fjölda stungu­sára má telja ljóst að fyrsta hjálp þeirra á staðnum hefur skipt sköpum en enginn mannanna er taldir í lífs­hættu eins og er.

Sérsveit ríkislögreglustjóra á vettvangi í gær.

Sam­kvæmt heimildum Frétta­blaðsins flugu hótanir á víxl opin­ber­lega á sam­fé­lags­miðlum skömmu fyrir á­rásina á Banka­stræti Club í gær­kvöldi. Mennirnir eru sagðir hafa verið „í stríði“ á sam­fé­lagmiðlum og birtust hótanir á Instagram-reikningi eins mannanna sem er í haldi.

Margeir Sveins­son, að­stoðar­yfir­lög­reglu­þjónn, segir í sam­tali við Frétta­blaðið að þetta sé eitt af því sem er til skoðunar hjá lög­reglunni.

„Það er bara eitt af því sem við erum að skoða,“ segir Margeir. Hann gat ekki sagt frekari til um tengsl mannanna. „Nú er málið bara á frum­stigi. Þetta er bara eitt af því sem við erum að skoða og sjá hver tengslin eru. Við erum að reyna ná utan um málið og átta okkur á fjöldanum og hverjir eru þarna að verki,“ segir Margeir.

Yfir­heyrslur hafa verið í gangi bæði af vitnum og öðrum hjá lögreglunni.

„Og það bara heldur á­fram,“ segir Margeir.