Ógnaði nágrönnunum með skóflu eftir deilur um snjómokstur

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um ágreining milli nágranna í Hafnarfirði um sexleytið í gær sem upp kom eftir snjómokstur á bílastæðum. Fréttablaðið greinir frá málinu en þetta kemur fram í dagbók lögreglu.

Þar segir að hjón hafi verið búin að moka snjó úr tveimur bílastæðum og er tekið fram að um hafi verið að ræða bílastæði við fjölbýlishús. Voru bílar þeirra lagðir í stæðunum tveimur.

Þau þurftu svo að nota annan bílinn en þegar þau komu til baka hafði nágranni lagt bíl sínum í stæðið. Þau vildu að bíllinn yrði færður en nágranninn var ekki tilbúinn til þess.

Segir í dagbók lögreglu að þá hafi snjó verið mokað að bílnum þannig ekki hafi verið hægt að komast inn í bílinn. Ekki kemur fram hver mokaði snjónum að bílnum en nokkuð ljóst er að það gerðu hjónin. Segir þá að nágranni hjónanna hafi í kjölfarið ógnað hjónunum með skóflu.

Lögregla hafði annars staðar afskipti af tveimur ökumönnum í miðbæ Reykjavíkur sem grunaðir eru um akstur undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna. Þá fékk lögregla tilkynningu um tjón á bensínstöð í Kópavogi um ellefuleytið í gærkvöldi þar sem bíl var bakkað á bensíndælu.