Ögmundur segir Sjálfstæðisflokk og Vinstri-græna ekki eiga samleið: „Þar með svíkja þeir kjósendur sína“

Ögmundur Jónasson, fyrrum þingmaður og ráðherra Vinstri-grænna, segir að Sjálfstæðisflokkur og Vinstri-grænir eigi ekki að starfa saman í ríkisstjórn nema við afar sérstakar og óeðlilegar aðstæður. Þetta segir hann á heimasíðu sinni.

Ögmundur er ekki hrifinn af fyrirhuguðu áframhaldandi samstarfi ríkisstjórnarflokkanna þriggja. Þeir séu allir að svíkja kjósendur sína, að sögn Ögmundar.

Hann hefur lagst í sagnfræðimennsku undanfarið og glöggvað sig á upphafi VG: „Rauði þráðurinn í aðdragandanum að stofnun VG var sá að þráðurinn þar yrði einmitt að vera rauður.
Okkur fannst mörgum að áhugafólk um samfylkingu félagshyggjufólks í einum stjórnmálalflokki sværi sig í ætt alþjóðlegs kratisma sem á þessum árum gerðist markaðssinnaðri með hverju árinu og hefði fjarlægst mjög félagslegar rætur sínar, gerst hallur undir einkavæðingu og einkaframkvæmd, stutt alþjóðavæðingu á forsendum fjármagnsins,“ segir Ögmundur.

Umhverfisvænu – eða „grænu“ – áherslur VG hafi heillað marga: „Síðan voru það grænu áherslurnar. Þær voru að sjálfsögðu mótandi við hreiðurgerð hins nýja flokks. Samspil hins rauða og græna þótti eftirsóknarvert. Kröfur um jafnrétti kynjanna, jöfnuð og lýðræði setti og sitt mark á hina nýju hreyfingu og það ekki lítið,“ segir Ögmundur enn fremur.

Margt af þessu hafi horfið segir Ögmundur og flokkurinn verði ekki alvöru vinstri-flokkur aftur nema að hætta í núverandi ríkisstjórnarsamstarfi: „Sumt af þessu er enn til staðar hjá VG en aðrir þættir - þeir sem ég legg mest upp úr - hafa þynnst svo út að litgreiningar er þörf til að koma auga á pólitískan lit þeirra. Ef VG ætlar sér framhaldslíf með skírskotun til vinstri í heiti sínu þarf flokkurinn að kúvenda og gerast alvöru vinstri flokkur á ný. Það mun ekki gerast með framhaldi á núverandi ríkisstjórnarsamstarfi,“ segir Ögmundur.

Ögmundur veltir því næst upp hvaða aðrir valkostir séu í boði fyrir VG. Að vera í stjórnarandstöðu sé ekki svo slæmt: „Hvað þá? Stjórnarandstaða er valkostur - og hann er ekki slæmur – það er að segja ef hann yrði til þess að tekin yrði upp barátta fyrir vinstri stefnu. VG, Samfylking og Framsókn gætu líka myndað meirihluta ásamt Flokki fólksins,“ segir Ögmundur.

Hann heldur áfram: „Slík samsetning yrði miklu skárri en núverandi mynstur, synd að hafa ekki sósíalista í þingsalnum í stjórn eða utan stjórnar til að hvetja til vegferðar til vinstri. Viðreisn stendur lengst til hægri og því fráleitur valkostur og Píratar vilja ekki láta kenna sig við félagshyggju. Þeirra meginmál er að opið sé fram á gang svo allir heyri allt sem sagt er inni.“

Hann gefur lítið fyrir Pírata: „Krafa Pírata um gagnsæi er góð og hún er virðingarverð en meira þarf að koma til fyrir minn smekk. Mér sýnist Miðflokkinn helst langa til að standa til hægri og það gerir hann. Miðflokkurinn hefur þó átt góða spretti og nefni ég þar orkupakkamálið,“ segir Ögmundur.

Hann tætir fleiri flokka í sig: „Framsókn er kleifhuga flokkur með sumt það versta úr íslenskri hagsmunapólitík innanborðs (áhrifin úr þeirri átt fara að vísu dvínandi) en líka margt það besta. Í þá átt þarf að horfa og virkja samvinnutaugina. Svo þarf að minna Samfylkinguna á allar yfirlýsingar hennar um að hún sé jafnaðarmannaflokkur. Það þarf að hjálpa þeim flokki að trúa því að svo sé í raun,“ segir Ögmundur.

Hann heldur áfram: Og viti menn eini þingmaðurinn á Alþingi sem greiddi atkvæði gegn einkaframkvæmdarfrumvarpi Sigurðar Inga formanns Framsóknarflokksins (sem flutt var í nafni ríkisstjórnarinnar) var þegar allt kemur til alls samfylkingarkonan Oddný Harðardóttir. Aldrei myndu þau greiða þannig atkvæði núverandi og fyrrverandi forystumenn Sjálfstæðisflokksins þau Bjarni Benediktsson og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir. Hin sem sátu í ríkisstjórn á nýliðnu kjörtímabili gerðu það ekki heldur. En einmitt því þarf að breyta,“ segir Ögmundur.

Ögmundur segir að ríkisstjórn eigi ekki að samanstanda bæði af Sjálfstæðisflokki og Vinstri-grænum nema undir mjög sérstökum kringumstæðum, eins og: „ef vera skyldi í Móðuharðindum eða heimsstyrjöld. Covid dugir ekki til. Þar verður samstaða þjóðarinnar til óháð Stjórnarráðinu.“

Hann segir Covid ástandið hafa dreift athygli almennings: „Það sem Covid hefur hins vegar gert er að drepa á dreif og dylja undanslátt stjórnarflokkanna gagnvart loforðum sínum við kjósendur – það kallast málamiðlun, hljómar betur.“

Ögmundur heldur áfram: „Samkvæmt mínum skilningi hefur sú málamiðlun á nýliðnu kjörtímabili fyrst og fremst verið á kostnað félagslegra vinstri sjónarmiða. Það á við um markaðsvæðingu orkunnar, einkavæðingu og einkaframkvæmd víðs vegar um kerfið, eignasöfnun í landi, aðgangur seldur að þjóðgarði og náttúru, kvótakerfið styrkt í sessi, grunnnet og bankar á markað, þátttaka í hervæðingu og þjónkun við heimsauðvaldið í viðureign þess við ríki sem neita að gerast því undirgefin,“ segir Ögmundur.

Hann segir núverandi ríkisstjórnarflokka geti ekki starfað saman án þess að svíkja kjósendur þeirra: „Ástæðan fyrir því að þessir stjórnmálaflokkar eiga ekki að starfa saman er sú að þar með svíkja þeir kjósendur sína. það gerist nánast óhjákvæmilega. Þeir gefa sig nefnilega út fyrir að vera merkisberar stefnu sem stangast á nánast að öllu leyti. Svo hefur það verið til þessa. Framsókn gætir þess að vera opin í báða enda þannig að hún svíki bara annan endann í einu,“ segir Ögmundur.