„Ósköp er þetta dapurlegt. Við eigum að mótmæla þessu. Ég geri það hér með,“ segir Ögmundur Jónasson, fyrrverandi þingmaður og ráðherra, á heimasíðu sinni.
Ögmundur gerir þar frétt RÚV frá því á laugardagskvöldið að umtalsefni, en í henni var greint frá því að svokallaður ferðamannakvóti verði settur á fyrirtæki sem vilja fara með ferðamenn í Vatnajökulsþjóðgarð. Markmiðið er að auka öryggi og minnka álag.
Þetta þýðir að nú mega til dæmis að hámarki 3.300 ferðamenn fara á suðursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs, en þar hefur verið boðið upp á vinsælar íshellaferðir og jöklagöngur. 27 fyrirtæki sóttu um, allir fengu úthlutað en ekki allt sem þeir vildu, að sögn Magnúsar Guðmundssonar, framkvæmdastjóra Vatnajökulsþjóðgarðs.
Þá kom fram í frétt RÚV að samið sé til eins árs og hvert fyrirtæki greiði 50 þúsund krónur fyrir samninginn. Sagði Magnús að til greina komi að rukka fyrir hvern ferðamann en í ljósi kórónuveirufaraldursins hafi verið ákveðið að gera það ekki.
Ögmundur er augljóslega ekki sáttur við þetta og veltir því fyrir sér hvort málið hafi verið rætt í ríkisstjórn eða í þingflokkum.
„Finnst þingmönnum þetta ekki vera neitt mál? Eða bara fínt? Eins og markaðsvæðing andrúmsloftsins? Þessi ríkisstjórn byrjaði að selja aðgang að Þingvöllum. Hún lætur óátalið að rukkað sé í Kerið og víðar, stöðunum fer fjölgandi þar sem gjalds er krafist fyrir að horfa á perlur náttúrunnar, listsköpun Móður jarðar, sem enginn maður getur eignað sér. Ríkisstjórnin lætur markaðsvæðingu íslenskrar náttúru festa sig í sessi og færa út kvíarnar,“ segir Ögmundur sem mótmælir þessu harðlega.