Ofurlaun bæjarstjóra Garðabæjar: Fær meira en borgarstjóri London – Skorað á Gunnar að lækka launin

Gunnar Einars­son, bæjar­stjóri í Garða­bæ og bæjar­full­trúi þeirra Sjálf­stæðis­manna var með 28.8 milljónir króna í laun á síðasta ári. Þá voru launa­tengd gjöld Gunnars 5.798.459 krónur.

Þetta kom fram í svari bæjar­stjórnar til Garða­bæjar­listans við fyrir­spurnum um árs­reikning bæjar­stjórnar í sveitar­fé­laginu. Laun Gunnars eru sam­kvæmt þessu 2.4 milljónir á mánuði. Í um­fjöllun Vísis kom fram að Gunnar hefði verið með 2.65 milljónir á mánuði og var þá vitnað í tekju­blað Frjálsrar verslunar.

Þar kom fram að Gunnar væri með hærri laun en borgar­stjórinn í London sem er með 1.8 milljónir króna í laun á mánuði en sá stýrir 9 milljóna manna borg á meðan um 16 þúsund manns búa í Garða­bæ. Þá sagði í um­fjöllun Stundarinnar að Sjálf­stæðis­mennirnir og bæjar­stjórarnir Gunnar Einars­son og Ár­mann Kr. Ólafs­son bæjar­stjóri Kópa­vogs hefðu hærri laun en borgar­stjóri New York.

Einnig kom fram hjá Stundinni að ofan á launin væri Gunnar með af­not af glæsi­bif­reið. Þá sagði að þeir Gunnar og Ár­mann væri á fimm­földum lág­marks­launum.

Í svara bæjar­stjórnar í Garða­bæ kom einnig fram að sam­tals voru laun bæjar­full­trúa 37.397.760 og launa­tengd gjöld 5.634.787. Laun fyrir nefndar­setu bæjar­full­trúa var 25.670.076 og launa­tengd gjöld 4.063.336. Þá var kostnaður fyrir aðra sem sátu í nefnd 22.847.136 og launa­tengd gjöld 3.371.963

Þá birti Vísir tekju­hæstu bæjar­stjóranna á Ís­landi en fimm efstu voru eftir­farandi:

Gunn­ar Ein­ars­­son, bæj­ar­­stjóri í Garða­bæ: 2,65 millj­ón­ir

Elliði Vign­is­­son, bæj­ar­­stjóri í Ölfusi: 2,26 millj­ón­ir

Ásta Stef­áns­dótt­ir, sveit­ar­­stjóri í Blá­­skóga­byggð: 2,22 millj­ón­ir

Sæv­ar Freyr Þrá­ins­­son, bæj­ar­­stjóri á Akra­nesi: 2,16 millj­ón­ir

Sturla Böðvars­son, fv. bæj­ar­stjóri í Stykk­is­hólmi: 2,06 millj­ón­ir

Katrín skammast og fær skammir

Katrín Jakobs­dóttir for­sætis­ráð­herra hefur gagn­rýnt þetta og kallaði launa­greiðslurnar óhóf í Víg­línunni á Stöð 2. Þess má geta að Katrín var sam­kvæmt út­tekt USA Today í 17 sæti yfir launa­hæstu þjóðar­leið­toga heims. Þar sagði að Katrín hefði verið með 29 milljónir í árs­laun. Fékk Katrín yfir sig hol­skeflu af gagn­rýni þegar greint var frá hennar háu launum í ís­lensku miðlum. Þá hefur Steingrímur J. Sigfússon, forseti þingsins og þingmaður Vinstri grænna einnig verið gagnrýndur en hann kostaði þingið 27 milljónir á síðasta ári.

Ofur­laun bæjar­stjóra hafa reglu­lega verið gagn­rýnd. Fyrir fá­einum dögum gagn­rýndi rekstrar­hag­fræðingurinn Hákon Þór Sindra­son í Stundinni hin háu laun og í ljósi þeirrar stöðu sem upp er komin í sam­fé­laginu skoraði hann á bæjar­stjórana að lækka laun sín næstu mánuðina um milljón á mánuði en eftir að kóróna­veiran hóf að herja á Ís­land hefur at­vinnu­leysi aukist gríðar­lega og margir sem munu eiga erfitt með að reka sín heimili þegar fram í sækir. Það sé því eðli­legt að al­þingis­menn og svo bæjar­stjórar gangi fram fyrir skjöldu og lækki laun sín á meðan kóróna­tíma­bilið gengur yfir.