„Ofstækistaktar hans eru kristalskýrir“: Steingrímur og Hanna elda grátt silfur - „Hefur öskrað á mig, hótað mér og þar með hrætt mig og börnin mín“

Á aðfangadag birti Hanna Kristín Skaftadóttir færslu á Facebook þar sem hún sagði að síðasta hálfa árið hefði hún og börn hennar búið við hótanir og árásir af hendi nágranna síns, almennatengilsins Steingríms Sævarrs Ólafssonar.

„Hann Steingrímur Sævarr Ólafsson almannatengill hefur öskrað á mig, hótað mér og þar með hrætt mig og börnin mín.“ sagði hún og sakaði Steingrím til að mynda um að kveikja opinn elda á sameign þeirra í þeim eina tilgangi að reykfylla fasteign sína. Það hafi orðið til þess að dóttir hennar endaði í læknishöndum með alvarlegan astma.

Þá birti Hanna myndband af Steingrími færa ruslatunnur fyrir bílinn hennar og loka hann þar með inni.

Steingrímur hefur nú sent frá sér yfirlýsingu til DV vegna myndbandsins. Þar segir hann að í það vanti margt og í raun sé það klippt til.

„Upptakan úr „falinni myndavél“ eins íbúans þar sem ég er að færa ruslatunnur er stutt í annan endann. Sem sagt klippt þannig að einungis sést þegar ég færi þær allar út í miðja innkeyrsluna til þess svo að fara með þær í næsta áfanga á sinn hefðbundna stað við innkeyrsluvegg,“ segir Steingrímur sem vill meina að Hanna hafi fært tunnurnar fyrir framan tröppur að útidyrum annarrar íbúðar.

„Þessi sérstaklega tilklippti partur af upptökunni afsannar að mínu mati kenninguna um að ein mynd segi meira en þúsund orð. Þvert á móti getur hún með svona misnotkun afbakað allan sannleika,“ skrifar hann.

Steingrímur hvetur fólk sem hefur áhuga á málinu til að kynna sér málavexti og hvaðan frumkvæði uppþotanna kemur. Þá spyr hann hvers vegna aldrei hafi komið til afskipta lögreglu í málinu.

„Það er nefnilega nokkuð ljóst að í atburðarásinni ræður heil hugsun ekki för.“ segir í lok yfirlýsingar Steingríms.

Hanna hefur nú birt svar við yfirlýsingu Steingríms og gefur lítið fyrir hana og sakar hann um gaslýsingu.

„Ofstækistaktar hans eru kristalskýrir á myndbandinu. Mögulega er þetta ein vandræðalegasta „yfirlýsing“ sem ég hef lesið,“ segir hún.

„Myndi ekki ráða þennan mann til að sinna almannatengslum fyrir mig ef þetta er hans besta afsökun fyrir ógnandi og vitfirringslegri hegðun sinni sem við öll heimilisfólkið og fleiri fjölskyldumeðlimir höfum orðið vitni að.“ bætir hún við og fullyrðir að hegðun hans þoli illa dagsljósið.