Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu hefur miklar áhyggjur af því að íbúar séu að hamstra bensín vegna yfirvofandi verkfalls á morgun. Raðir hafa myndast við bensínstöðvar og bensínbrúsar eru að klárast, að því er Fréttablaðið greinir frá.
Verkfall olíubílstjóra hjá Samskipum, Olíudreifingu og Skeljungi hefst á morgun klukkan 12:00. Undirbúa forsvarsmenn olíufélaga sig, auk forsvarsmanna matvöruverslana. Þórður Guðjónsson, forstjóri Skeljungs, segist telja að bensínbirgðir ættu að duga fyrir almenna notendur þar til í næstu viku.
Þá segir Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónuss, að undirbúningur vegna verkfalla sé í fullum gangi. Bónus hafi pantað inn í stærra upplagi en áður og segir Guðmundur búast við að verslanir geti verið opnar eitthvað fram yfir helgi.
Slökkviliðið biðlar til fólks um að vera ekki með bensín heima hjá sér. Mikilvægt sé að hafa í huga að olía og bensín í brúsum geti skapað hættu og er fólk beðið um að hamstra ekki eldsneyti.
Frétt Fréttablaðsins í heild sinni