Ófremdarástand í Öldugötu: Óttast að nágranni sinn muni gera „eitthvað skelfilegt“

Íbúar í Öldugötu í Hafnarfirði óttast ákveðinn nágranna sinn, og vilja að stjórnvöld grípi inn í „áður en eitthvað skelfilegt gerist“. DV fjallar um málið, en í frétt miðislins kemur fram að lögreglu hafi borist nokkur útköll vegna mannsins og að hann hafi verið kærður fyrir líkamsárás fyrir þremur vikum.

Maðurinn sem um ræðir er á ofanverðum sextugsaldri og býr í eigin íbúð í húsi í götunni.

„Þetta er í grunninn góður og duglegur maður en það er eitthvað mikið að hjá honum núna og hann þarf hjálp. Ég óttast hið versta ef ekki verður gripið inn í.“ er haft eftir nágranna mannsins og annar segir: „Fólk óttast nýtt Barðavogsmál ef ekki verður gert eitthvað í þessu,“

Á dögunum fór myndband af manninum í dreifingu á samfélagsmiðlum, en það sýndi mannninn í brjálæðiskasti í Strætó. Þar sagði hann:

„Ég fer að berja þig, á endanum á ég eftir að gera það. En ekki í strætó, nei kallinn minn, það verður að vera fyrir utan. Ég fer ekki að skíta út strætóinn með þínu blóði.“

Hægt er meira um málið á vef DV