Hákarlar ógna vinsælli Íslendingaströnd á Spáni

Ófremdarástand er nú á Spáni, en yfir­völd þar í landi neyddust til að banna sjósund í gær á vin­sælum strand­stöðum á Sit­ges-svæðinu vegna hættu á há­karla­á­rásum. Fréttablaðið fjallar um málið.

Fram kemur að þrír há­karlar hafi sést undan­farna daga á sundi í nágrenni við strendur á norðanverðum Spáni, síðast í gær við bað­strendurnar Fra­gata, Ribera, Bassa Rodona og Estanyol. Umræddar strandir eru geysi­vin­sælar meðal ferða­manna, og talið er að þónokkrir Íslendingar séu á svæðinu.

Það eru þó ekki bara hákarlar sem eru að valda usla á Spáni, heldur er veðrið líka til vandræða. Mikil hita­bylgja hefur geisað á Spáni síðustu vikur. Hæsti hiti vikunnar á Spáni er um 46 gráður.

Fréttablaðið greindi frá því í gærkvöld að Íslendingar ættu í erfiðleikum í hitanum.

„Ég hef aldrei verið í svona miklum hita,“ var haft eftir Maríu Kristjáns­dóttur en hún og fjöl­skylda hennar eru stödd á Spáni.

„Systir mín býr í Valla­dolid og það er svaka hita­bylgja þar akkúrat núna, hitinn er í kringum 40 til 41 gráða þar núna. Þetta er fá­rán­legt, það er ekki líft,“ segir María.