„Það er bara mikill léttir að vera laus við þetta, þótt að maður sé núna meira var um sig,“ segir Hrönn Hjálmarsdóttir, íbúi í Grafarvogi í samtali við Fréttablaðið.
Færsla hennar um veggjalús (e. bedbugs) hefur vakið talsverða athygli en rúm á heimili Hrannar reyndist vera fullt af veggjalús og eggjum. Talið er líklegt að lúsin hafi komist inn á heimili hennar eftir ferðalag fjölskyldunnar til Frakklands í sumar og náð að dreifa svona hressilega úr sér.
Upp komst um málið þegar dóttir Hrannar fór að kvarta undan bitum sem læknir að vísu taldi að væri ofnæmi en ekki bit. Eftir að veggjalús fannst í rúminu höfðu þau samband við meindýraeyði til að afgreiða málið.
Við undirbúning fyrir komu meindýraeyðisins kom hinsvegar í ljós „einn sá mesti viðbjóður sem við höfum nokkurntíman séð innandyra“ þegar heilt vistkerfi af veggjalúsum og þúsundum eggja sem áttu eftir að klekjast út fundust.
Það reyndist talsverð vinna að losna við lúsina því plasta þurfi rúmgaflinn, rúmotninn og kommóðu sem á fundust pöddur og bera út fyrir förgun. Restin af herberginu var hituð upp með tæki sem hitar gufu í 180 gráður og svo var eitrað. Þá voru öll föt þvegin eða hreinlega sett í frystikistuna í -24 gráður.
Í færslunni hvetur hún fólk til setja ferðatöskuna á gólfið þegar komið er úr utanlandsferð.
„Munið bara krakkar mínir....... aldrei setja ferðatösku á rúmið ykkar þegar þið komið úr utanlandsferð..... og þvoið allt. Sennilega hefur ein frönsk padda komið með dömunni heim frá Frakklandi í sumar, það er eina skýringin sem við höfum.“