Öflugur jarðskjálfti reið yfir suðvesturhorn landsins klukkan rúmlega 10 í morgun og fannst skjálftinn vel á höfuðborgarsvæðinu og á suðvesturhorni landsins. Allar línur eru uppteknar hjá Veðurstofunni og því liggur ekki nákvæmlega fyrir hversu stór skjálftinn var.
Samkvæmt upplýsingum á vef Veðurstofunnar var um að ræða þrjá skjálfta með mjög skömmu millibili. Sá fyrsti var 4,5 að stærð, annar var 5,1 og sá þriðji var 5,3. Upptökin voru skammt suðsuðvestur af Keili.
Klukkan 10:18 reið enn annar skjálftinn yfir og var hann nokkuð snarpur.
Fréttin verður uppfærð.
Var þetta ekki jarðskjálfti eða er verið að sprengja einhversstaðar í kringum bókhlöðuna?
— Jóna Þ. Pétursdóttir (@jonapeturs) February 24, 2021
Næs að liggja uppi í rúmi þegar það kemur jarðskjálfti. Smá eins og vera með nudd í rúminu :)
— Inga (Yes Sir I Can) Boogie (@Inga_toff) February 24, 2021
WHAT THE FUCK VAR ÞETTA JARÐSKJÁLFTI??
— Auður Kolbrá (@AudurKolbra) February 24, 2021
Er á hlöðunni og bara heppin að ég fékk ekki hillurnar yfir mig. Var viss um að það væri verið að sprengja bara...
Það var semsagt ekki einhver poltergeist að hrista gluggatjöldin og öll húsgögnin heima hjá mér, þetta var jarðskjálfti?
— Geir Finnsson (@geirfinns) February 24, 2021
HOLY SHIT ÞESSI JÁRÐSKJÁLFTI
— zyber 1 (@Zyber47) February 24, 2021
Besta leiðin til að komast að því hvort þetta var jarðskjálfti. pic.twitter.com/GausW8i9Jb
— Eiríkur Rafnsson (@eirikurrr) February 24, 2021
Vá, þessi var langur #jarðskjálfti
— Ivar Gunnarsson (@ivargu) February 24, 2021
Ég bý á efstu hæð í blokk og alltaf þegar það skellur jarðskjálfti pæli ég í því hvort að minn tími sé kominn.
— Jón Bjarni (@jonbjarni14) February 24, 2021