Öflugur jarðskjálfti á höfuðborgarsvæðinu

Nokkuð snarpur jarðskjálfti reið yfir höfuðborgarsvæðið rétt í þessu og fannst hann víða. Samkvæmt upplýsingum Hringbrautar voru upptök hans á Suðurlandsbrotabeltinu og var hann líklega í kringum 5 að stærð þó það hafi ekki verið staðfest. Íbúar á suðvesturhorni landsins eru orðnir býsna vanir jarðskjálftum eftir hrinuna í tengslum við jarðræringarnar á Reykjanesi. Upptökin að þessu sinni voru þó ekki á Reykjanesi því þau voru skammt norðaustur af Hvolsvelli og Hellu samkvæmt korti á vef eðurstofu Íslands.