Öfgar vilja að for­maður KKÍ segi af sér: „Þöggun og gas­lýsing“

Öfgar, hópur rót­tækra femín­ista, saka Körfu­knatt­leiks­sam­bandi Ís­lands um þöggun og gas­lýsingu, telja stjórn KKÍ ó­hæfa til að taka á of­beldis­málum og krefjast þess að for­maður sam­bandsins, Hannes S. Jóns­son og stjórn KKÍ segi af sér.

Þetta segir hópurinn í kjöl­farið að því að KKÍ hafnaði öllum á­sökunum Í­þrótta­fé­lagsins Aþenu um þöggun og að­gerðar­leysi í málum tengdum kyn­bundnu of­beldi á bug.

,,KKÍ vísar öllum á­sökunum Aþenu á bug“ er fyrir­sögnin á yfir­lýsingu stjórnar KKÍ var birtist þann 23. febrúar síðast­liðinn. Í yfir­lýsingunni á­réttir stjórn KKÍ þrjár á­sakanir Í­þrótta­fé­lagsins Aþenu. En Öfga hópurinn tekur yfir­lýsinguna ekki í sátt.

,,Það fyrsta sem þeir á­rétta er að árið 2009 hafi þjálfara kvenna­lands­liðsins í körfu­bolta verið sagt upp vegna trúnaðar­brests og með því halda þeir á­fram þöggunar­til­burðum. Á­stæða upp­sagnarinnar er meint kyn­ferðis­leg á­reitni þjálfara gagn­vart ungum lands­liðs­konum sem hafa stigið fram og sagt sína sögu. Að stjórn KKÍ feli sig á­fram á bak við trúnaðar­brest, þegar þol­endur leituðu til KKÍ á sínum tíma sem leiddi til upp­sagnar þjálfarans, er þöggun og gas­lýsing gagn­vart þeim. Er það litið al­var­legri augum ef þjálfari brýtur trúnað heldur en ef hann kyn­ferðis­lega á­reitir leik­menn sína?" segir í yfir­lýsingu Öfga til KKÍ.

Um­ræddur þjálfari tjáði sig um upp­sögnina í við­tali þann 17. apríl 2009 og sagði hann „Þetta er eitt­hvað sem mér finnst mjög leiðin­legt. Ég er í raun alveg eyði­lagður vegna þessa“. Með­limir Öfga segjast stór­lega efast um að þjálfarinn sé eyði­lagður vegna meintrar á­reitni gegn ungu lands­liðs­konunum og sé að vísa til þess að honum hafi fundist leiðin­legt að hafa ekki komist upp með þessa hegðun. ,,Hann axlaði enga á­byrgð í þessu stutta við­tali og kaus að tjá sig ekki um raun­veru­lega á­stæðu upp­sagnarinnar sem leiðir til okkar á­lyktunar um að hann sjái ekki eftir gjörðum sínum."

For­maður KKÍ, Hannes Sigur­björn Jóns­son, tjáði sig einnig um málið í við­tali 17. apríl 2009 og sagði „Þetta er við­kvæmt mál. Þetta er bara leiðin­legt“. ,,Fannst for­manni einnig leiðin­legt að þjálfarinn hafi ekki komist upp með þessa hegðun?" segir í yfir­lýsingu Öfga.

Með­limir Öfga segja að orð­ræða þjálfarans og formanns KKÍ um málið á sínum tíma og enn í dag sé til há­borinnar skammar og geri lítið úr þol­endunum. Þrátt fyrir að KKÍ hafi tekið þá á­kvörðun um að segja við­komandi upp þjálfara­störfum innan lands­liðsins hafi til­tekinn þjálfari verið endur­ráðinn innan sam­bandsins. ,,Hann fékk stöðu innan KKÍ nokkrum árum eftir brott­reksturinn og sinnti hann meðal annars þjálfara­menntun þrátt fyrir að stjórn KKÍ væri mjög með­vituð um meinta hegðun hans. Það er at­hyglis­vert að hugsa til þess að þjálfari sem sakaður var um meinta kyn­ferðis­lega á­reitni fái að sjá um þjálfara­menntun eftir að þol­endur leituðu til KKÍ og til­kynntu hann fyrir á­reitnina. Þjálfarinn hefur nú látið af störfum að eigin ósk, svo að stjórn KKÍ getur ekki með neinum hætti sagt til um það hvort honum hefði verið sagt upp núna eða ekki," segir í yfir­lýsingu Öfga.

Segja KKÍ hafa brotið lög ÍSÍ

Í yfir­lýsingu við á­sökunum Aþenu á dögunum segist KKÍ myndu taka öðru­vísi á máli er varðar leik­mann sem lék tvo leiki með karla­lands­liði Ís­lands árið 2014 eftir að hafa af­plánað dóm vegna nauðgunar. ,,Hvernig getið þið sett þessa stað­hæfingu fram þegar allt bendir til þess að þið hafið þaggað niður þau of­beldis­mál sem hafa komið inn á ykkar borð? Þessi á­kvörðun um að velja dæmdan nauðgara, sem hafði ekki fengið upp­reist æru þegar hann spilaði 2 leiki fyrir lands­liðið, er brot á 5. grein a í lögum ÍSÍ. Í þeirri grein er til­greint að ó­heimilt er að velja ein­stak­ling sem vitað er til að hafi hlotið refsi­dóma vegna brota á á­kvæðum XXII. kafla al­mennra hegningar­laga nr. 19/1940, sem varða kyn­ferðis­brot, til starfa innan í­þrótta­hreyfingarinnar hvort sem það er á launum eða í sjálf­boða­vinnu," segir í yfir­lýsingu Öfga í dag.

Að­gerða­hópurinn segist velta því fyrir sér hvers vegna á­kvörðun KKÍ um að fara gegn lögum ÍSÍ og velja til­tekinn leik­mann í lands­liði hafði engar af­leiðingar fyrir stjórn KKÍ. Með­limir Öfga kalla eftir svörum frá ÍSÍ um þetta til­tekna mál og út­skýringar á því ,,hvers vegna það virðast ekki hafa verið neinar af­leiðingar fyrir KKÍ sem brutu gegn lögum þessum."

Vilja að for­maður og stjórn KKÍ segi af sér


Það þriðja sem KKÍ á­réttaði í sinni yfir­lýsingu sem var svar við á­sökunum í­þrótta­fé­lagsins Aþenu er að árið 2020 var dómara á vegum sam­bandsins sagt upp störfum eftir að þolandi leitaði til for­ystu KKÍ með upp­lýsingar um ó­sæmi­leg sam­skipti dómarans við leik­menn á sam­fé­lags­miðlum. Gagn­rýni Aþenu sneri að því að dómaranum hafi verið sagt upp í kyrr­þey og var ekki greint frá málinu fyrr en það rataði í fjöl­miðla í janúar 2021.

,,For­maður KKÍ, Hannes Sigur­björn Jóns­son, tjáði sig um málið 26. janúar 2021 í við­tali þar sem hann sagði að dómarinn sé ekki lengur virkur í niður­röðun dómara­nefndar en að það sé ekki inn­byggt inn í ferla varðandi störf dómara að setja ein­hvern í bann fyrir fullt og allt. Meint hegðun dómarans fer á móti siða­reglum KKÍ þar sem fram kemur, er varðar dómara, að þeir skuli sýna leik­mönnum virðingu, vera til fyrir­myndar í fram­komu og hegðun og mis­nota aldrei stöðu sína sem dómari. Siða­nefnd KKÍ á að sjá til þess að siða­reglur KKÍ séu í heiðri hafðar en hvergi hefur komið fram að nefndin hafi tekið mál dómarans fyrir. Hver er til­gangur nefndarinnar ef hún getur ekki sett dómara sem sýnir leik­mönnum ó­sæmi­lega hegðun í skila­boða­sam­skiptum af kyn­ferðis­legum toga í bann fyrir fullt og allt þar sem stjórn KKÍ virðist ófær um það?" segir í yfir­lýsingu Öfga um málið.

Öfgar styðja yfir­lýsingu Aþenu og segjast standa með þol­endum. Hópurinn telur stjórn KKÍ ó­hæfa til að taka á of­beldis­málum sem koma inn á þeirra borð og krefjast þess að for­maður á­samt stjórn KKÍ segi af sér.