Öfgar komin í jólafrí: „Óskum ykkur góðra og Öfgafullra jóla“

Samtökin Öfgar eru formlega komin í jólafrí. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samtökunum á Twitter.

„Öfgar eru komin í jólafrí til 4. janúar. Við munum ekki svara skilaboðum og tölvupóstum fyrr en þá. Óskum ykkur góðra og Öfgafullra jóla,“ segir í tilkynningunni.

Samtökin hafa náð mikilli athygli í baráttu sinni og kemur það líklega mörgum á óvart að þau hafi nú fyrir skömmu aðeins verið að fagna hálfs árs starfsafmæli sínu.

Stefna samtökin á halda ótrauð áfram á nýju ári.