Öfgar hrósa sigri eftir atburði dagsins: „Hvar er gubbu fatan?“

Meðlimir Öfga fagna nú sigri eftir að atburði dagsins.

Eins og greint hefur verið frá hafa Arnar Grant, Ari Edwald, Þórður Már Jóhannesson og Hreggviður Jónsson allir brugðist við frásögn Vítalíu Lazareva sem lýsti ofbeldi af hálfu nokkurra manna í sumarbústaðarferð í desember 2020. Þá er Logi Bergmann á leið í frí.

Ólöf Tara, meðlimur Öfga, segir á Twitter:

„Dagurinn í dag er sigur! Fokking sigur.“

Helga Ben tekur undir með henni og segir:

„Ef það væri ekki fyrir þrotlausa baráttu hjá okkur í Öfgum á síðasta ári, þá værum við ennþá á sama stað,“ segir hún.

Þakkar hún svo Eddu Falak fyrir að „gefa öllu hugrökku þolendunum platform til að tjá sig. Þegar sterkar konur koma saman þá hefur feðraveldið ekkert í okkur,“ og segir einnig: „Áfram íslenskir aktívistar.“

Þá hefur Ólöf einnig endurbirt frásögn sem Vítalía hefur undir höndum: